Landsvirkjun dregur úr álverðstengingu

Höfuðstöðvar Landsvirkjunar
Höfuðstöðvar Landsvirkjunar

Álverð hefur lækkað um 20% síðan það náði hámarki í byrjun mars á þessu ári. Kostar tonnið af áli nú um 1900 Bandaríkjadollara, en kostaði þá 2.353 dollara. Í upphafi árs var heimsmarkaðsverðið 2.020 dollarar og því er um að ræða 7% lækkun fyrstu sjö mánuði ársins. Segir í markaðspunktum Arion banka að þetta skýrist helst af „bakslagi í efnahagsbata Vesturlanda og veikari eftirspurn í Asíu en fyrirséð var“.

Segir greiningardeild bankans jafnframt frá því að breyting á álverði skýri um 97% allra frávika síðustu 10 árin í tekjum Landsvirkjunar vegna raforkusölu. Fyrirtækið hafi aftur á móti markvisst dregið úr álverðstengingu í samningum og fóru tekjur af álverðsmiðuðum samningum úr 64% árið 2009 niður í 45% árið 2011 og er gert ráð fyrir að sú tala hafi lækkað um 30-40% aukalega síðan þá.

Vegna mikilla sviptinga á álverði eftir því hvernig hagsveiflur eru hverju sinni tryggir Landsvirkjun sig með álverðsafleiðum. Þar á meðal innbyggðum afleiðum vegna þess hluta raforkukaupa- og sölusamninga fyrirtækisins sem eru tengdir álverði. Hinn hlutinn eru afleiðusamningar til að verjast breytingum á álverði og er þá álverðið almennt fest í ákveðnu verði. Síðustu fimm ár hafa innleystar áhættuvarnir verið á bilinu 60 milljónir Bandaríkjadollara í kostnað upp í 42 milljónir dollara í tekjur. 

Hér sést hvaða samningum með álversviðmiði hefur fækkað síðustu ár.
Hér sést hvaða samningum með álversviðmiði hefur fækkað síðustu ár. Arion banki
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK