WOW yngir upp flotann

WOW air
WOW air mbl.is

Í gær tók WOW air á móti nýrri Airbus A320-vél árgerð 2011 og fór hún með farþega WOW air frá London til Íslands í gærkvöldi. Þetta er fyrsta vélin af fjórum nýlegum Airbus A320-vélum sem WOW air mun taka í gagnið fyrir næsta vor. Vélin verður nýjasta þotan sem notuð er í áætlunarflugi til og frá Íslandi af íslensku flugfélagi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá WOW air.

Nýju Airbus A320-vélarnar eru mun sparneytnari en eldri vélar félagsins og jafnframt menga þær umtalsvert minna. Engin breyting verður á samstarfi WOW air við Avion Express sem verður áfram flugrekstraraðili WOW air.

„Það er virkilega ánægjulegt að geta strax tekið í notkun þessa fyrstu af fjórum nýlegum Airbus A320-vélum sem WOW air mun vera með í notkun frá og með næsta vori. Eftir yfirtökuna á Iceland Express erum við að stórauka leiðarkerfi okkar og tíðni og munum leggja mikla áherslu á að bjóða ávallt upp á fyrsta flokks aðbúnað og þjónustu fyrir okkar farþega,“ segir Skúli Mogensen, forstjóri WOW air. 

Efnisorð: WOW air
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK