Íslenskur gaffall um allan heim

Guðberg Björnsson og Benedikt Skúlason með nýju hönnunina.
Guðberg Björnsson og Benedikt Skúlason með nýju hönnunina. Rax / Ragnar Axelsson

Hjól­reiðakapp­arn­ir og vin­irn­ir Bene­dikt Skúla­son og Guðberg Björns­son endurhönnuðu hjólaffalinn fyrir nokkrum árum og stofnuðu fyrirtækið Lauf Forks. Í dag er gaffallinn kominn í dreifingu víða um heim; allt frá Argentínu til Suður-Kóreu. 

Að sögn Benedikts eru þeir félagar komnir með átján dreifingaraðila um allan heim. „Þetta er í fyrsta sinn sem við förum að krafti inn í sumarið. Stóru markaðirnir eru að detta í gang,“ segir Benedikt og bætir við að bandaríski dreifingaraðilinn sé t.a.m. með um 5.000 verslanir á sínum snærum.

Léttari en aðrir

Lauf gaffallinn er sérstakur að því leyti að hann er mun léttari en aðrir sambærilegir hágæða gafflar. Gaffallinn byggir á stutt­um sam­síða glertrefja­fjöðrum til að ná fram fjöðrun, í stað hefðbund­inna teleskópískra demp­ara. Þannig svarar hann höggum vel, þarfn­ast ekki viðhalds og veg­ur aðeins um 900 grömm, en al­menn­ir demp­aragaffl­ar í hágæðaflokki eru í dag á bil­inu 1,2 til 1,5 kíló. 

Ná samningum við hjólaframleiðendur

Gaffallinn er seldur sérstaklega, þannig að fólk þarf að skipta þeim út sem fyrir er á hjólinu. Benedikt bendir á að sá markaður sé takmarkaður en reiknar með að um 300 eintök muni seljast á mánuði í ár. Framtíðaráætlunin er hins vegar að ná samningum við hjólaframleiðendur þannig að gaffallinn verði hluti af upphaflegri hönnun hjólanna. Benedikt segir þá vera komna með samning við stóran þýskan hjólaframleiðanda en bætir þó við að ótímabært sé að nefna hann á nafn, þar sem þeir hyggjast kynna samstarfið í sumar.

„Framan af hlaut gaffallinn blendnar móttökur þar sem hann lítur öðruvísi út en þeir sem menn hafa áður séð. En eftir að menn hafa fengið að prófa hann hefur hann fengið afbragðs góða dóma,“ segir Benedikt.

Að neðan má sjá myndband sem breski dreifingaraðili Lauf Forks lét framleiða en það sýnir gaffalinn í notkun.

Frétt mbl.is: Nýjung í hjólaheiminum

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK