Aðgerðapakki stjórnvalda hafði áhrif

„Það er algjör tekjubrestur hjá okkur. Óvissan er mikil en …
„Það er algjör tekjubrestur hjá okkur. Óvissan er mikil en við verðum að vera tilbúin að setja allt í gang þegar eftirspurnin fer að taka við sér,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, um efnahagsleg áhrif kórónuverirufaraldursins. mbl.is/Árni Sæberg

Aðgerðapakki stjórnvalda sem kynntur var í hádeginu hafði áhrif á útfærslu uppsagna hjá Icelandair sem taka gildi um mánaðamótin. Þetta segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, í samtali við mbl.is. Rúmlega 2.000 starfsmönnum var sagt upp í dag og ná uppsagnirnar til allra hópa inn­an fé­lags­ins, en mest þó á störf bein­tengd fram­leiðslu. 

„Það er gríðarlega erfitt að standa í þessu en algjörlega nauðsynlegt. Við verðum að bregðast við þessu óvissuástandi, við vitum ekki lengur hversu lengi þetta mun vara, þessi tími sem við erum í mjög lítilli framleiðslu,“ segir Bogi. 

Icelandair hefur orðið fyrir gríðarlegu höggi vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Rúmlega …
Icelandair hefur orðið fyrir gríðarlegu höggi vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Rúmlega 2.000 starfsmönnum fyrirtækisins var sagt upp í dag og taka uppsagnirnar gildi um mánaðamótin. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Vonast til að geta dregið hluta uppsagnanna til baka

Áhrif kórónuveirufaraldursins á Icelandair eru einna helst þau að aðeins 2-3% af upphaflegri flugáætlun er í gildi þessa dagana og tekjufall Icelandair nemur mun meira en 75% að sögn Boga, en það er viðmið stjórnvalda fyrir þau fyrirtæki sem geta sóst eftir stuðningi úr rík­is­sjóði vegna greiðslu hluta launa­kostnaðar á upp­sagn­ar­fresti. „Það lá alltaf fyrir að við yrðum að fara í uppsagnir, sama hvert útspil stjórnvalda yrði, en þetta hjálpar til í rekstrinum og sjóðsstreyminu hjá okkur,“ segir Bogi. 

Þá mun Icelandair einnig halda áfram að nýta sér hlutabótaleiðina. „Það er algjör tekjubrestur hjá okkur. Óvissan er mikil en við verðum að vera tilbúin að setja allt í gang þegar eftirspurnin fer að taka við sér,“ segir Bogi og vonar hann að hægt verði að draga hluta uppsagnanna til baka áður en langt um líður. 

Mikil tækifæri fyrir Ísland og Icelandair þegar krísunni linnir

Fram kom í Morgunblaðinu í dag að heim­ild­ar­menn inn­an þeirra sjóða sem mest eiga í Icelanda­ir Group segj­ast opn­ir fyr­ir því að leggja flug­fé­lag­inu til nýtt hluta­fé. Bogi segir að umræður við fjárfesta eru á algjöru byrjunarstigi og því ekki tímabært að tjá sig meira um það að sinni. 

Hvað framtíðarhorfur Icelandair og ferðaþjónustunnar í heild sinn varðar kveðst Bogi vera bjartsýnn. „Ég tel að Ísland hafi mikil tækifæri þegar krísunni linnir, sem ferðamannaland.“ Hann segir Ísland verða áfram mikilvæga tengimiðstöð fyrir alþjóðaflugvelli milli Norður-Ameríku og Evrópu. „En við vitum ekkert hvenær við getum farið af stað en ég tel að tækifærin fyrir Ísland og Icelandair verði mikil í framhaldinu.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK