Vatnsgjald verði þjónustugjald

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur nú gefið út leiðbeiningar vegna ákvörðunar …
Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur nú gefið út leiðbeiningar vegna ákvörðunar vatnsgjalds. mbl.is/Heiddi

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur nú gefið út leiðbeiningar vegna ákvörðunar um vatnsgjald en gjaldið skal skráð sem þjónustugjald.

Yfirferð ráðuneytisins árið 2019 á gjaldskrám vatnsveitna sveitarfélaganna leiddi í ljós að ekki væri nægilega ljóst á hvaða kostnaðarliðum sveitarfélög og vatnsveitur í þeirra eigu byggðu ákvarðanir sínar um álagningu vatnsgjalds. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðs Íslands

Ekki heimilt að reikna út arð úr rekstri vatnsveitna

Með bréfi til allra sveitarfélaga í lok árs 2019 fór ráðuneytið fram á að gjaldskrár vatnsveitna sveitarfélaga væru yfirfarnar þannig að þær taki mið af þeim sjónarmiðum að vatnsgjald sé þjónustugjald og að óheimilt væri að ákvarða sveitarfélagi arð af fjármagni sem bundið er í rekstri vatnsveitu. 

Ráðuneytið hefur óskað eftir því við öll sveitarfélög að gjaldskrár vatnsveitna verði yfirfarnar að nýju með hliðsjón af leiðbeiningum ráðuneytisins og þau upplýsi ráðuneytið um forsendur fyrir þeim útreikningum sem gjaldskrár vatnsveitna um álagningu vatnsgjalds eru byggðar á. Jafnframt verði ráðuneytið upplýst um langtímaáætlanir vatnsveitnanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK