Alvotech tilkynnir jákvæða niðurstöður úr rannsókn á AVT03

Róbert Wessman, forstjóri og stjórnarformaður Alvotech.
Róbert Wessman, forstjóri og stjórnarformaður Alvotech. mbl.is/Kristinn Magnússon

Alvotech tilkynnti í dag jákvæðar niðurstöður rannsóknar á lyfjahvörfum AVT03 sem er fyrirhuguð líftæknilyfjahliðstæða við Prolia og Xgeva, en bæði lyfin innihalda denosumab. Prolia og Xgeva (denosumab) eru lyf við sjúkdómum í beinum.

Þetta kemur fram í tilkynningu Alvotech til Kauphallarinnar. 

Þá segir einnig í tilkynningunni að rannsókninni hafi verið ætlað að bera saman lyfjahvörf, öryggi og þolanleika AVT03 og Prolia í heilbrigðum einstaklingum og voru aðalendapunktar hennar uppfylltir. Rannsókn á klínískri virkni AVT03 í sjúklingum stendur yfir, auk rannsóknar til að bera saman lyfjahvörf AVT03 og Xgeva í heilbrigðum einstaklingum.

„Við erum afar ánægð með framvindu klínískra rannsókna á AVT03. Þessi áfangi og nýlegar niðurstöður úr öðrum klínískum rannsóknum, sýnir vel getu Alvotech og framúrskarandi aðstöðu sem við höfum byggt upp til þróunar og framleiðslu á líftæknilyfjahliðstæðum,“ er haft eftir Joseph McClellan, framkvæmdastjóra rannsókna hjá Alvotech.

Tekjur af sölu Prolia og Xgeve námu meira en 825 milljörðum króna

Prolia (denosumab) er líftæknilyf til meðferðar við beinþynningu eftir tíðahvörf hjá konum og við beintapi hjá körlum og konum sem eru í aukinni hættu á beinbrotum. Xgeva, sem inniheldur einnig denosumab í öðru lyfjaformi, er gefið til að fyrirbyggja einkenni frá beinum, svo sem sjúkleg beinbrot hjá fullorðnum með langt gengna illkynja sjúkdóma sem tengjast beinum. Það er einnig gefið til meðferðar við risafrumuæxli í beinum. Á liðnum tólf mánuðum fyrir 30. september 2023, námu samanlagðar tekjur af sölu Prolia og Xgeva meira en 825 milljörðum króna, samkvæmt ársfjórðungslegum uppgjörstölum framleiðanda frumlyfjanna, segir enn fremur í tilkynningu Alvotech. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK