Spá óbreyttum vöxtum í næstu viku

Landsbankinn spáir óbreyttum stýrivöxtum í næstu viku.
Landsbankinn spáir óbreyttum stýrivöxtum í næstu viku. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsbankinn spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands muni halda stýrivöxtum bankans óbreyttum í 9,25% í næstu viku á meðan óvissa ríkir um kjaraviðræður og hamfarir í Grindavík.

Peningastefnunefndin mun funda á miðvikudag og kynna vaxtaákvörðun. Á síðasta fundi nefndarinnar í nóvember var ákveðið að halda vöxtum óbreyttum með vísan í óvissu vegna jarðhræringa á Reykjanesi.

Landsbankinn telur ólíklegt að afstaða nefndarinnar muni breytast, þá sérstaklega vegna erfiðleika Samtaka atvinnulífsins og stéttarfélaga undir regnhlíf Alþýðusambands Íslands að komast að samkomulagi vegna kjaraviðræða.

Óvissa hefur slæm áhrif á verðbólguvæntingar

Óvissa vegna kjaraviðræða eða náttúruhamfara geta ýtt undi verðbólguvæntingar og þar með verðbólgu. Í fyrra hækkuðu laun um 9,8% og er líklegt að nefndin muni vilja sjá meiri ró á vinnumarkaðinum áður en gripið er til aðgerða.

Ekki er vitað hvernig ríkisútgjöld vegna hamfara í Grindavík verða útfærð og fjármögnuð, en útgjaldaaukningin mun nema allt að 70-100 milljörðum sem leitar beint inn á húsnæðismarkað.

Íbúðaverð sótt í sig veðrið

Verðhækkanir á íbúðamarkaði halda áfram að sögn bankans sökum fjölgunar hlutdeildalána og væntinga um íbúðaskort. Eftirspurn eftir íbúðum eykst í ljósi þess að Grindvíkinga vantar ný heimili, sem stjórnvöld munu veita fjármagn fyrir.

Þá segir að þörf sé á framboðsmiðuðum aðgerðum til að taka í tauminn á verðhækkunum á íbúðamarkaði, en nú þegar hafa takmarkanir á skammtímaleigu til ferðamanna verið til umræðu.

Áframhaldandi eftirspurn mun jafnframt auka spennu á vinnumarkaði með tilheyrandi þenslu og verðbólguþrýstingi.

Verðbólga hjaðnar

Verðbólga hefur lækkað frá 7,9% niður í 6,7% frá síðasta fundi nefndarinnar í nóvember. Landsbankinn spáir enn meiri hjöðnun á þessu ári og að verðbólga verði komin niður í 5,1% í apríl.

Þó lækkunin sé meiri en spáð var er enn langt í land að ná verðbólgunni undir 4-5%, sem er þó langt yfir 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabankans.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK