Flak Empire Wold fannst í Faxaflóa

Frá stýrisvél flaksins.
Frá stýrisvél flaksins. Ljósmynd/Aðsend

Flak breska dráttarbátsins Empire Wold sem fórst með allt að 17 mönnum í nóvember 1944 fannst nýverið í innanverðum Faxaflóa. Íslenskum aðstandendum eins skipverjans hefur verið tilkynnt um fundinn og breska sendiráðinu gert viðvart.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslu Íslands.

Í lok apríl var varðskipið Þór við sjómælingar þar sem dýpi var mælt með fjölgeisladýptarmæli skipsins. Í innanverðum Faxaflóa urðu skipverjar og sjómælingamenn um borð í varðskipinu Þór varir við þúst á hafsbotni sem vakti sérstaka athygli og var talið mögulegt að um skipsflak væri að ræða.

Ekki var vitneskja um skipsflak á þessum slóðum og því ákvað Landhelgisgæslan að kanna málið betur.

Sjómælingabáturinn Baldur var sendur út til rannsókna með fjölgeisladýptarmæli en einnig var hafður með í för sjálfstýrður kafbátur frá Teledyne Gavia sem skannaði þústina með hliðarhljóðsjá. Gögn frá mælingum Baldurs og Gavia staðfestu að um flak væri að ræða, að því er kemur fram í tilkynningunni.

Þar sem ekki var unnt að staðfesta hvaða skip ætti í hlut fór Baldur í annan leiðangur með neðansjávarmyndavél Árna Kópssonar. Með gögnum úr þeim leiðangri var hægt að staðfesta að flakið væri af breska dráttarbátnum Empire Wold sem fórst í innanverðum Faxaflóa í nóvember 1944 og með honum allt að 17 menn.

Örlög dráttarbátsins Empire Wold tengjast hildarleiknum þegar flutningaskipinu Goðafossi og tankskipinu Shirvan var sökkt af þýskum kafbáti við Garðskaga 10. nóvember 1944. Saga Goðafoss og Shirvan er vel þekkt en færri hafa heyrt um dráttarbátinn sem sendur var frá Reykjavík til að reyna að bjarga tankskipinu. Shirvan hélst nokkuð lengi á floti þrátt fyrir skemmdir eftir tundurskeytið og rak logandi undan veðri og vindum.

Líkan af Empire Wold.
Líkan af Empire Wold. Ljósmynd/Aðsend

Talið er að um borð í Empire Wold hafi verið níu manna áhöfn og átta bandarískir sjóliðar. Empire Wold hélt út frá Reykjavík um klukkan þrjú síðdegis 10. nóvember 1944 og sigldi til vesturs í átt að Shirvan. Síðan þá hefur ekkert spurst til skipsins fyrr en nú, 74 árum síðar.

Ýmsar getgátur hafa verið uppi um hugsanleg örlög Empire Wold, að því er kemur fram í tilkynningunni, meðal annars þær að skipinu kynni að hafa verið sökkt af kafbáti eða að það hefði siglt á tundurdufl. Ekkert kom hins vegar fram í gögnum Þjóðverja um að kafbátur hafi sökkt dráttarbáti við Ísland og var því seinna farið að horfa til þess hvort veður og sjólag kynnu að hafa grandað Empire Wold.

Þarna sést byssa skipsflaksins.
Þarna sést byssa skipsflaksins. Ljósmynd/Aðsend

Eftir rannsóknir Landhelgisgæslunnar á flakinu bendir ekkert til þess að skipið hafi sokkið af völdum tundurdufls eða tundurskeytis. Ekki er því hægt að skera úr um orsök þess að Empire Wold fórst í Faxaflóa.

Fundur flaks Empire Wold var tilkynntur til breska sendiráðsins og einnig til íslenskra aðstandenda eins skipverjans en 2. vélstjóri dráttarbátsins var kvæntur íslenskri konu og áttu þau 9 mánaða gamla dóttur þegar slysið varð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »