Breytt staðsetning til bóta fyrir umhverfið

Sjókvíar í Patreksfirði. Mynd úr safni.
Sjókvíar í Patreksfirði. Mynd úr safni. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Matvælastofnun hefur gefið út breytt rekstrarleyfi fyrir sjókvíaeldisstöðvar Fjarðalax í Patreksfirði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni.

Segir þar að rekstrarleyfi Fjarðalax hf., til framleiðslu á laxi í sjókvíum í nýjum stöðvum í Patreksfirði og Tálknafirði, hafi verið gefin út í desember síðastliðnum.

„Í upphafi árs kom í ljós að færa þyrfti til eldissvæði Fjarðalax að Eyri í Patreksfirði vegna straumstefnu fjarðarins. Breyting á staðsetningu eldissvæðanna er til bóta fyrir umhverfið og eldisfiskinn og var það mat Skipulagsstofnunar að breytingin væri ekki háð mati á umhverfisáhrifum,“ segir í tilkynningunni.

Umhverfisstofnun vinni því nú að útgáfu nýs starfsleyfis en ljóst sé að starfsleyfi verði ekki gefið út fyrr en í fyrsta lagi í júlí.

„Vegna áætlana Fjarðalax að setja út seiði í byrjun júní sótti fyrirtækið um undanþágu frá starfsleyfi til umhverfis- og auðlindaráðuneytisins svo unnt væri að gefa út breytt rekstrarleyfi af hálfu Matvælastofnunar með nýrri staðsetningu sjókvía.“

Kröfur í starfsleyfi haldist óbreyttar

Í umsögn Umhverfisstofnunar vegna meðferðar umhverfisráðuneytisins komi fram að breytingin sé ekki líkleg til að auka lífrænt álag í firðinum heldur væri hún til þess fallin að draga úr neikvæðum umhverfisaðstæðum.

„Kröfur í starfsleyfi munu haldast óbreyttar og gerði Umhverfistofnun ekki athugasemdir við að undanþága yrði veitt. Umhverfisráðuneytið veitti í framhaldinu undanþáguna og gildir hún til 1. október 2018.

Matvælastofnun telur að um óverulega breytingu á útgefnu leyfi frá desember 2017 sé að ræða, þar sem eingöngu er um að ræða breytingar á hnitum á einu eldisvæði og dagsetningu áður útgefins leyfis. Breytingin telst á allan hátt jákvæð með tilliti til umhverfis og velferðar fisksins og hefur stofnunin því breytt rekstrarleyfi varðandi staðsetningu kvíar að Eyri í Patreksfirði.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg
26.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 101 kg
Karfi 1 kg
Samtals 102 kg
26.4.24 Ríkey MB 20 Handfæri
Ufsi 91 kg
Karfi 1 kg
Samtals 92 kg
26.4.24 Lea RE 171 Handfæri
Ufsi 181 kg
Samtals 181 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg
26.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 101 kg
Karfi 1 kg
Samtals 102 kg
26.4.24 Ríkey MB 20 Handfæri
Ufsi 91 kg
Karfi 1 kg
Samtals 92 kg
26.4.24 Lea RE 171 Handfæri
Ufsi 181 kg
Samtals 181 kg

Skoða allar landanir »