Bátur Arnarlax verður fyrsti sinnar tegundar

Nýr bátur Arnarlax verður tengiltvinnbátur sem gert er ráð fyrir …
Nýr bátur Arnarlax verður tengiltvinnbátur sem gert er ráð fyrir að lækki kolefnisspor rekstrarins til muna. Myndin er af svipuðum bát, en bátur Arnarlax verður heilum metri lengri og hálfum metri breiðari. Ljósmynd/Moen Marin

Arnarlax gekk á dögunum frá samningi við Moen Marin um smíði á nýjum þjónustubát. Tvíbyttnan verður fyrsti tengiltvinbáturinn sem sinnir fiskeldi hér á landi og verður nægum rafhlöðum til að geta vera rekin losunarlaust.

Markmið Arnarlax með fjárfestingu í þessari lausn er að draga verulega úr kolefnisspori rekstursins, að því er fram kemur í umfjöllun norsku eldisfréttaveitunnar iLaks.

„Sem eitt af stærri fiskeldisfyrirtækjum á Íslandi hyggst Arnarlax vera leiðandi á sviði umhverfisvænni orkulausna,“ segir Björn Hembre, framkvæmdastjóri Arnarlax. Hann segir fjárfestinguna vera lið í að ná mikilvægum markmiðum fyrirtækisins um gott vinnuumhverfi, skilvirkum og öruggum rekstri og minnkandi kolefnisspori.

Björn Hembre.
Björn Hembre. mbl.is/Hari

Moen Marin er stærsti framleiðandi þjónustubáta fyrir fiskeldisiðnaðinn á heimsvísu og má finna báta þeirra í öllum ríkjum þar sem sjókvíaeldi á lax fer fram. Á undanförnum áratug hefur Moen Marin framleitt um 300 báta fyrir fiskeldisgreinina á heimsvísu, þar af eru 85 bátar tengiltvinnbátar með öflugt rafhlöðukerfi.

„Samningurinn um fyrsta tengiltvinnbátinn á Íslandi markar mikil tímamót fyrir okkur og tímamót fyrir fiskeldisiðnaðinn á Íslandi. Arnarlax er mikilvægur og góður viðskiptavinur okkar og við þökkum það traust sem þeir bera til okkar,“ segur Mivhael Kristiansen, sölustjóri Moen Marin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »