„Gott að vita að fylgst er með“

Helgi Már með viðurkenningu sína á sjómannadaginn.
Helgi Már með viðurkenningu sína á sjómannadaginn. Ljósmynd/Kristján Maack

„Það er alltaf gaman að fá viðurkenningu fyrir vel unnin störf og gott til þess að vita að fylgst er með,“ segir Helgi Már Sigurgeirsson, yfirvélstjóri á Víkingi AK, en hann var heiðraður á sjómannadaginn með viðurkenningunni Neistanum sem Félag vélstjóra og málmiðnaðarmanna og TM veita ár hvert fyrir yfirvélstjórastörf.

Helgi Már, sem er úr Garði, hóf sjómennskuferilinn sem fyrsti vélstjóri og yfirvélstjóri á vertíðarbátnum Freyju GK á árunum 1993 til 1995, að því er fram kemur á vef HB Granda.

Í framhaldinu var hann fyrsti vélstjóri á Sigga Bjarna GK og einnig vélstjóri í landi hjá Nesfiski í Garði meðfram námi til ársins 1998. Þá lauk Helgi Már 4. stigi frá Vélskóla Íslands en sveinspróf í vélvirkjun tók hann árið 2000. Helgi Már var fyrsti vélstjóri og yfirvélstjóri á Antares VE á árunum 1999 til 2001. Það ár réði Helgi Már sig svo í sömu störf á  Faxa RE, sem Faxamjöl gerði þá út. Við sameiningu Faxamjöls og Granda hf., sem síðar varð HB Grandi, stóð Helgi Már áfram vaktina og hann var yfirvélstjóri á Faxa allt þar til að áhöfnin fluttist yfir á nýtt skip, Víking AK. 

„Það voru viðbrigði fyrir okkur að fara yfir á nýtt skip. Aðstaðan er öll betri og rýmri fyrir áhöfnina.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 392,73 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 306,71 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 207,51 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 114,63 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,11 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Sigrún GK 97 Grásleppunet
Grásleppa 1.491 kg
Þorskur 132 kg
Rauðmagi 13 kg
Samtals 1.636 kg
26.4.24 Magnús Jón ÓF 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.223 kg
Þorskur 215 kg
Ufsi 51 kg
Ýsa 38 kg
Samtals 1.527 kg
26.4.24 Lundey SK 3 Grásleppunet
Grásleppa 680 kg
Þorskur 161 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 856 kg
26.4.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 1.393 kg
Þorskur 97 kg
Samtals 1.490 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 392,73 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 306,71 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 207,51 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 114,63 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,11 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Sigrún GK 97 Grásleppunet
Grásleppa 1.491 kg
Þorskur 132 kg
Rauðmagi 13 kg
Samtals 1.636 kg
26.4.24 Magnús Jón ÓF 14 Grásleppunet
Grásleppa 1.223 kg
Þorskur 215 kg
Ufsi 51 kg
Ýsa 38 kg
Samtals 1.527 kg
26.4.24 Lundey SK 3 Grásleppunet
Grásleppa 680 kg
Þorskur 161 kg
Ufsi 15 kg
Samtals 856 kg
26.4.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 1.393 kg
Þorskur 97 kg
Samtals 1.490 kg

Skoða allar landanir »