36 þúsund tonn af rusli í Barentshafi

Máfur reynir að hefja sig til flugs, umvafinn plastpoka.
Máfur reynir að hefja sig til flugs, umvafinn plastpoka. AFP

„Við finnum rusl og plast bæði með botnvörpum, uppsjávartrollum og einnig á yfirborðinu. Maður vill gjarnan halda að Barentshafið sé hreint hafsvæði, en þar finnum við líka rusl,“ segir vísindamaðurinn Bjørn Einar Grøsvik hjá Hafrannsóknastofnun Noregs.

Um 36 þúsund tonn af rusli er að finna í Barentshafi, og þar af um átta þúsund tonn af plasti og gúmmíi, samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem kynntar voru fyrr á árinu.

Meira finnst af rusli nær strönd Noregs en úti á hafi. „En því miður finnum við rusl á flestum þeim stöðum sem við leitum á,“ segir Bjørn í samtali við Fiskeribladet, en sjálfur hefur hann að undanförnu siglt um Barentshaf og Byfjorden við Björgvin í leit að rusli.

„Við höfum leitað að míkróplasti úti á opnu hafi, og höfum fundið plast af þeirri stærð á yfirborðinu. Okkur vantar hins vegar upplýsingar um smærri agnir.“

Meira finnst af rusli nær strönd Noregs en úti á …
Meira finnst af rusli nær strönd Noregs en úti á hafi. AFP

Keðjuverkandi áhrif

Bjørn segir magn af plasti í hafinu vera mikið vandamál.

„Ef plastnotkun heldur áfram að aukast með sama hraða og hún hefur gert á síðustu árum, þá erum við komin með nokkuð sem við getum ekki losað okkur við, og sömuleiðis vitum við ekki afleiðingar þess. Það getur verið skaðlegt fyrir hluta af fæðukeðjunni og ef svo verður mun það hafa keðjuverkandi áhrif á aðra hluta fæðukeðjunnar.“

Vísindamaðurinn segist telja að lausnin sé sú að hugsa um hvaða efni við mennirnir notum og hvernig við getum dregið úr losun úrgangs.

„Ef þetta heldur áfram sem horfir, mun plastið byggjast upp og líkurnar á slæmum afleiðingum fyrir sumar tegundir verða miklar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,40 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,86 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,25 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 114,63 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,11 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Bjargfugl RE 55 Grásleppunet
Grásleppa 485 kg
Þorskur 32 kg
Rauðmagi 5 kg
Skarkoli 4 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 529 kg
26.4.24 Kambur HU 24 Grásleppunet
Grásleppa 2.813 kg
Þorskur 262 kg
Skarkoli 32 kg
Ýsa 10 kg
Þykkvalúra 5 kg
Rauðmagi 5 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 3.130 kg
26.4.24 Dagrún HU 121 Grásleppunet
Grásleppa 2.877 kg
Þorskur 167 kg
Skarkoli 47 kg
Ýsa 9 kg
Ufsi 7 kg
Rauðmagi 1 kg
Þykkvalúra 1 kg
Samtals 3.109 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,40 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,86 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,25 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 114,63 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 163,11 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Bjargfugl RE 55 Grásleppunet
Grásleppa 485 kg
Þorskur 32 kg
Rauðmagi 5 kg
Skarkoli 4 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 529 kg
26.4.24 Kambur HU 24 Grásleppunet
Grásleppa 2.813 kg
Þorskur 262 kg
Skarkoli 32 kg
Ýsa 10 kg
Þykkvalúra 5 kg
Rauðmagi 5 kg
Steinbítur 3 kg
Samtals 3.130 kg
26.4.24 Dagrún HU 121 Grásleppunet
Grásleppa 2.877 kg
Þorskur 167 kg
Skarkoli 47 kg
Ýsa 9 kg
Ufsi 7 kg
Rauðmagi 1 kg
Þykkvalúra 1 kg
Samtals 3.109 kg

Skoða allar landanir »