Tekið á móti 200 þúsund tonnum

Fiskimjölsverksmiðjan í Neskaupstað tók meðal annars á móti loðnu frá …
Fiskimjölsverksmiðjan í Neskaupstað tók meðal annars á móti loðnu frá norskum skipum á síðustu loðnuvertíð. Ljósmynd/Hákon Ernuson

Fiskimjölsverksmiðjur Síldarvinnslunnar hafa tekið á móti rúmlega 200 þúsund tonnum af hráefni það sem af er þessu ári. Allt síðasta ár tóku verksmiðjurnar á móti 196 þúsund tonnum.

Þetta kemur fram á vef útgerðarinnar, en þar segir að það sem af er árinu hafi verksmiðjan í Neskaupstað tekið á móti 145.460 tonnum. Þar af sé kolmunni 72.975 tonn, loðna 46.838 tonn, fráflokkaður makríll og makrílafskurður 7.443 tonn og fráflokkuð síld og síldarafskurður 15.993 tonn.

Verksmiðjan á Seyðisfirði hafi þá tekið á móti 46.157 tonnum í ár en þar sé nær eingöngu um kolmunna að ræða. Helguvíkurverksmiðjan hafi enn fremur tekið á móti 10.057 tonnum, þar af er loðna 6.941 tonn og makríll 2.812 tonn.

Mest hráefni í Neskaupstað

Gunnar Sverrisson, rekstrarstjóri fiskimjölsverksmiðjanna, segir að vinnslan í verksmiðjunum hafi gengið mjög vel í ár.

„Verksmiðjan í Neskaupstað fær mest hráefni ekki síst vegna þess að hún tekur við afskurði og því sem flokkast frá í fiskiðjuverinu þar og eins frá vinnsluskipum. Þá berst þangað að sjálfsögðu mikill kolmunni. Fyrir Seyðisfjörð er þetta ár tiltölulega gott miðað við það að þangað barst engin loðna, en kolmunninn sem þangað kom var unninn frá miðjum mars og til maíloka. Hvað Helguvíkurverksmiðjuna varðar þá barst þangað loðna undir lok vertíðar og tengist það hrognavinnslu. Þá barst þangað einnig makrílafskurður frá vinnsluskipum og þá helst frá grænlenska skipinu Polar Amaroq.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet
Þorskur 326 kg
Ýsa 66 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 439 kg
26.4.24 Oddverji SI 76 Grásleppunet
Grásleppa 1.934 kg
Þorskur 146 kg
Ýsa 42 kg
Skarkoli 30 kg
Ufsi 20 kg
Steinbítur 5 kg
Rauðmagi 1 kg
Samtals 2.178 kg
26.4.24 Hrönn NS 50 Grásleppunet
Grásleppa 2.040 kg
Þorskur 49 kg
Skarkoli 11 kg
Steinbítur 5 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 2.108 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet
Þorskur 326 kg
Ýsa 66 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 439 kg
26.4.24 Oddverji SI 76 Grásleppunet
Grásleppa 1.934 kg
Þorskur 146 kg
Ýsa 42 kg
Skarkoli 30 kg
Ufsi 20 kg
Steinbítur 5 kg
Rauðmagi 1 kg
Samtals 2.178 kg
26.4.24 Hrönn NS 50 Grásleppunet
Grásleppa 2.040 kg
Þorskur 49 kg
Skarkoli 11 kg
Steinbítur 5 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 2.108 kg

Skoða allar landanir »