„Það ríkir bölvuð vetrartíð“

Landað úr Vestmannaey í Vestmannaeyjum.
Landað úr Vestmannaey í Vestmannaeyjum. Ljósmynd/Guðmundur Alfreðsson

„Hér hefur fengist þokkalegur afli en það er miklu minna af fiski en hefur verið um þetta leyti árs síðustu þrjú árin. Þá er fiskurinn dreifður og styggur. Það er ætisleysi á slóðinni og til dæmis lítið um spærling. Ætisleysið gerir það að verkum að það fiskast vel á línuna,“ segir Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey VE.

Að sögn Birgis er varla hægt að fullyrða að vertíð sé hafin af krafti.

„Togveiðiskipin gera það hins vegar ekki eins gott og síðustu ár en segja má að við séum kröfuharðir því við erum orðnir svo góðu vanir. Ég hef trú á því að mikið af vertíðarfiskinum eigi eftir að ganga hér á miðin og aflinn á eftir að aukast. Hafa verður í huga að vetrarvertíð hefur oft ekki hafist fyrr en í byrjun mars,“ er haft eftir Birgi á vef Síldarvinnslunnar.

„Við höfum að undanförnu mest verið að fiska í Háfadýpinu, á Pétursey og erum nú út af Vík í Mýrdal. Veður hefur verið að stríða okkur töluvert og staðreyndin er sú að við höfum mest verið að skjótast út á milli lægða. Það ríkir bölvuð vetrartíð um þessar mundir.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 394,31 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,25 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,22 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Petra ÓF 88 Grásleppunet
Grásleppa 1.572 kg
Þorskur 81 kg
Skarkoli 35 kg
Steinbítur 11 kg
Ufsi 5 kg
Djúpkarfi 1 kg
Samtals 1.705 kg
26.4.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet
Grásleppa 546 kg
Samtals 546 kg
26.4.24 Auður HU 94 Grásleppunet
Grásleppa 1.519 kg
Þorskur 196 kg
Steinbítur 28 kg
Rauðmagi 25 kg
Skarkoli 4 kg
Þykkvalúra 1 kg
Samtals 1.773 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 394,31 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,25 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,22 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Petra ÓF 88 Grásleppunet
Grásleppa 1.572 kg
Þorskur 81 kg
Skarkoli 35 kg
Steinbítur 11 kg
Ufsi 5 kg
Djúpkarfi 1 kg
Samtals 1.705 kg
26.4.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet
Grásleppa 546 kg
Samtals 546 kg
26.4.24 Auður HU 94 Grásleppunet
Grásleppa 1.519 kg
Þorskur 196 kg
Steinbítur 28 kg
Rauðmagi 25 kg
Skarkoli 4 kg
Þykkvalúra 1 kg
Samtals 1.773 kg

Skoða allar landanir »