Vinnustöðvun áhafnar Herjólfs hefst á miðnætti

Herjólfur mun ekki sigla á meðan vinnustöðvuninni stendur.
Herjólfur mun ekki sigla á meðan vinnustöðvuninni stendur. mbl.is/Sigurður Bogi

Tímabundin vinnustöðvun skipverja á Herjólfi hefst á miðnætti í kvöld og stendur í einn sólarhring. Þetta var staðfest í kvöld þegar Félagsdómur hafnaði kröfu Samtaka atvinnulífsins, fyrir hönd Herjólfs ohf. um að dæma boðaða vinnustöðvun ólögmæta.

„Vinnustöðvunin var boðuð fyrir rúmri viku síðan en Herjólfur ohf., sem er í eigu Vestmannaeyjabæjar, ákvað að fara með málið fyrir Félagsdóm og freista þess að fá boðuninni hnekkt. Það kom úrskurður klukkan sjö eða átta í kvöld um það að vilji Herjólfs ohf. næði ekki fram að ganga,“ segir Jónas Garðarsson, formaður samninganefndar Sjómannafélags Íslands, í samtali við mbl.is.

Veit ekki hvort þetta sé vilji bæjarbúa og bæjarstjóra

Jónas segist ánægður með niðurstöðu Félagsdóms og vonast til að nú fari samningaviðræður að komast á skrið.

„Vonandi fæst þetta fólk sem vinnur hjá fyrirtæki bæjarins til að tala við okkur. Það hefur ekki fengist til þess í núna á annað ár. Ég veit ekki hvort það er með vilja bæjarbúa og bæjarstjóra,“ bætir hann við.

Um 20 starfsmenn er að ræða, háseta, bátsmenn og þjónustufólk og mun Herjólfur ekki sigla á meðan vinnustöðvunin stendur yfir.

Önnur vinnustöðvun er boðuð eftir viku, frá miðnætti 14. júlí og mun hún standa yfir í þrjá sólarhringa. Þriðja vinnustöðvunin verður svo frá miðnætti 28. Júlí og mun hún standa yfir í þrjá sólarhringa.

Fréttin var uppfærð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »