Ekki hægt að ákæra Íslendinga og félög Samherja

Þrír Íslendingar og félög tengd Samherja verða ekki meðal ákærðu …
Þrír Íslendingar og félög tengd Samherja verða ekki meðal ákærðu í svokölluðu Fishrot-máli vegna þess að þeir hafa ekki enn verið framseldir til Namibíu. Enginn framsalssamningur er í gildi milli Íslands og Namibíu. mbl.is/Sigurður Bogi

Dómari í svokölluðu Fishrot-máli, sem nú er rekið fyrir dómstólum í Namibíu, úrskurðaði í morgun að þrír Íslendingar og félög tengd Samherja verði ekki meðal ákærðu í málinu. Það er vegna þess að þremenningarnir verða að mæta fyrir dómara í Namibíu þar sem þeim er kynnt ákæra á hendur þeim. 

Samt sem áður sagði saksóknari fyrir rétti í Namibíu í dag að vinna væri farin af stað við að gera framsalsbeiðni á hendur mönnunum. Þetta kemur fram í fréttum namibískra miðla.

Enginn framsalssamningur er í gildi milli Íslands og Namibíu og því má teljast ólíklegt að þremenningarnir verði ákærðir í Namibíu.

Ekki hægt að ákæra Íslendingana

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir við mbl.is um málið segir að bersýnilegt hafi verið á viðbrögðum dómara í dag að hann hafi verið ósáttur við ákvörðun saksóknara að nafngreina félög tengd Samherja og Íslendingana þrjá, þrátt fyrir að hafa ekki enn reynt að taka af þeim skýrslu eða birta ákæru á hendur þeim. 

Íslendingarnir þrír hafa verið nafngreindir í fjölmiðlum hérlendis áður og þeir sagðir munu verða ákærðir í Namibíu, eins og gert var í frétt RÚV í febrúar. Eins og áður segir er ljóst að svo verði líklega ekki.

Þorsteinn sendi mbl.is skriflegt svar þegar leitað var eftir viðtali. Þar segir hann að ánægjulegt sé að dómstólar í Namibíu bregðist við aðför gegn Samherja.

„Samherji hefur ætíð byggt á því að þegar félög tengd Samherja og starfsmenn þeirra fá tækifæri til að greina frá sinni hlið mála muni málareksturinn í Namibíu taka á sig aðra mynd. Fram til þessa hafa staðreyndir málsins yfirleitt verið rangfærðar eða afbakaðar. Það er auðvitað ánægjuefni að dómstóll í Namibíu hafi brugðist við þeirri aðför sem einstaklingar og fyrirtæki tengd Samherja hafa þurft að sæta á opinberum vettvangi án þess að njóta viðeigandi málsmeðferðar. Afleiðingar þess komu berlega í ljós í þinghaldinu í dag.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 13.6.25 489,14 kr/kg
Þorskur, slægður 13.6.25 696,31 kr/kg
Ýsa, óslægð 13.6.25 494,19 kr/kg
Ýsa, slægð 13.6.25 246,86 kr/kg
Ufsi, óslægður 13.6.25 165,36 kr/kg
Ufsi, slægður 13.6.25 258,43 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 12.6.25 12,00 kr/kg
Gullkarfi 13.6.25 199,22 kr/kg
Litli karfi 11.6.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

14.6.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 5.555 kg
Ýsa 778 kg
Langa 493 kg
Steinbítur 375 kg
Keila 113 kg
Hlýri 88 kg
Karfi 78 kg
Ufsi 40 kg
Samtals 7.520 kg
14.6.25 Himbrimi ÍS 444 Sjóstöng
Þorskur 70 kg
Samtals 70 kg
14.6.25 Hávella ÍS 426 Sjóstöng
Þorskur 174 kg
Samtals 174 kg
14.6.25 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng
Þorskur 45 kg
Samtals 45 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 13.6.25 489,14 kr/kg
Þorskur, slægður 13.6.25 696,31 kr/kg
Ýsa, óslægð 13.6.25 494,19 kr/kg
Ýsa, slægð 13.6.25 246,86 kr/kg
Ufsi, óslægður 13.6.25 165,36 kr/kg
Ufsi, slægður 13.6.25 258,43 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 12.6.25 12,00 kr/kg
Gullkarfi 13.6.25 199,22 kr/kg
Litli karfi 11.6.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

14.6.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Þorskur 5.555 kg
Ýsa 778 kg
Langa 493 kg
Steinbítur 375 kg
Keila 113 kg
Hlýri 88 kg
Karfi 78 kg
Ufsi 40 kg
Samtals 7.520 kg
14.6.25 Himbrimi ÍS 444 Sjóstöng
Þorskur 70 kg
Samtals 70 kg
14.6.25 Hávella ÍS 426 Sjóstöng
Þorskur 174 kg
Samtals 174 kg
14.6.25 Sendlingur ÍS 415 Sjóstöng
Þorskur 45 kg
Samtals 45 kg

Skoða allar landanir »