Kerfið verður að standast lög

Strandveiðibátar frá Skagaströnd. Mynd úr safni.
Strandveiðibátar frá Skagaströnd. Mynd úr safni. mbl.is/Ólafur Bernódusson

Strandveiðifélag Íslands, félag um réttlæti í sjávarútvegi, var formlega stofnað í gær á stofnfundi félagsins. Gunnar Ingiberg Guðmundsson, nýkjörinn formaður félagsins, segir í samtali við mbl.is að fundurinn hafi verið vel sóttur og aðsóknin hafi verið framúr björtustu vonum.

Gunnar nefnir þó að brösuglega hafi gengið að koma upp fjarfundabúnaði fyrir fundinn sem varð til þess að þeir sextíu félagsmenn sem fylgdust með fundinum í gegnum beint streymi gátu ekki kosið.

„Það verður leiðrétt með aukaaðalfundi. Ætli það verði ekki boðaður stjórnarfundur á morgun og ætli aðalfundurinn verði ekki haldinn innan fjögurra vikna í það minnsta,“ segir Gunnar.

Vilja laga strandveiðikerfið

Aðspurður segir Gunnar markmið félagsins að fá strandveiðikerfið lagað.

„Það er í rauninni um það að kerfið standist þá lög og uppfylli þetta álit. Við ætlum að sækja það, það er megintilgangurinn,“ segir Gunnar og vísar í álit mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna frá október 2007 þar sem fram kem­ur að ís­lensku lög­in um stjórn fisk­veiða brjóti í bága við 26. gr. alþjóðasamn­ings um borg­ara­leg og stjórn­mála­leg rétt­indi um jafn­rétti allra manna. Þetta kom einnig fram í tilkynningu félagsins í gær.

Gunnar segir að Facebook-hópur félagsins hafi verið stofnaður fyrir nokkrum árum en formlegt félag ekki sett á laggirnar fyrr en nú þar sem á þeim tíma höfðu þau trú á því að Landssamband smábátaeigenda myndi berjast frekar fyrir strandveiðum.

„Það er alltaf þannig að það er aldrei hægt að ræða strandveiðar nema tíu mínútum áður en strandveiðar byrja og eins og ég segi það er ekki pólitískur vilji og held ég að það sé hægt að þvinga hann fram með áliti frá erlendum stofnunum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Austfirðingur SU 205 Línutrekt
Þorskur 7.439 kg
Ýsa 738 kg
Steinbítur 48 kg
Keila 21 kg
Karfi 12 kg
Samtals 8.258 kg
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg

Skoða allar landanir »