Skipstjóri Herjólfs, sem var uppvís að því fyrr á árinu að sigla án atvinnuréttinda, og Herjólfur ohf. hafa komist að samkomulagi um starfslok. Þetta staðfestir Hörður Orri Grettisson, framkvæmdastjóri Herjólfs.
Fjallað var um það fyrr á árinu að skipstjóri hjá Herjólfi hefði fengið áminningu í starfi og í kjölfarið lækkaður í tign eftir að upp komst að hann hefði haldið áfram að sigla skipinu eftir að siglingarréttindi hans runnu út.
Í samtali mbl.is við Hörð í janúar kom fram að skipstjóranum hefði verið veitt annað tækifæri og að honum væri gefið færi á að endurvinna það traust sem hann hafði tapað. Voru atvinnuréttindi skipstjórans í kjölfarið endurnýjuð.
Skipstjórinn og Herjólfur ohf. komust aftur á móti að samkomulagi um starfslok sem voru tilkynnt starfsmönnum í gær. Spurður að því hvers vegna til starfsloka hafi komið núna en ekki um leið og málið komst í ljós sagðist Hörður ekki vilja tjá sig um það en sagði þó að um væri að ræða erfitt mál.
Að sögn Harðar hefur félagið skerpt á verklagsreglum sem voru þegar til staðar en hafi ekki reynst nægilega góðar. Reiknar Hörður með því að þetta endurtaki sig ekki aftur.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.9.24 | 561,08 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.9.24 | 601,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.9.24 | 242,37 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.9.24 | 294,73 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.9.24 | 220,11 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.9.24 | 284,94 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.9.24 | 275,93 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
19.9.24 Björg EA 7 Botnvarpa | |
---|---|
Ufsi | 5.373 kg |
Karfi | 1.881 kg |
Samtals | 7.254 kg |
19.9.24 Langvía ÍS 416 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 146 kg |
Samtals | 146 kg |
19.9.24 Skinney SF 20 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 42.346 kg |
Ýsa | 2.332 kg |
Ufsi | 453 kg |
Hlýri | 344 kg |
Karfi | 344 kg |
Skarkoli | 272 kg |
Steinbítur | 244 kg |
Þykkvalúra | 48 kg |
Langa | 47 kg |
Sandkoli | 24 kg |
Keila | 16 kg |
Skötuselur | 14 kg |
Langlúra | 7 kg |
Samtals | 46.491 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.9.24 | 561,08 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.9.24 | 601,90 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.9.24 | 242,37 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.9.24 | 294,73 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.9.24 | 220,11 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.9.24 | 284,94 kr/kg |
Djúpkarfi | 12.9.24 | 378,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.9.24 | 275,93 kr/kg |
Litli karfi | 16.9.24 | 10,34 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 18.9.24 | 314,00 kr/kg |
19.9.24 Björg EA 7 Botnvarpa | |
---|---|
Ufsi | 5.373 kg |
Karfi | 1.881 kg |
Samtals | 7.254 kg |
19.9.24 Langvía ÍS 416 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 146 kg |
Samtals | 146 kg |
19.9.24 Skinney SF 20 Botnvarpa | |
---|---|
Þorskur | 42.346 kg |
Ýsa | 2.332 kg |
Ufsi | 453 kg |
Hlýri | 344 kg |
Karfi | 344 kg |
Skarkoli | 272 kg |
Steinbítur | 244 kg |
Þykkvalúra | 48 kg |
Langa | 47 kg |
Sandkoli | 24 kg |
Keila | 16 kg |
Skötuselur | 14 kg |
Langlúra | 7 kg |
Samtals | 46.491 kg |