Fimmtán ára selur 130 fiskikör

Hér má sjá mynd af fiskikörunum sem Steinar Bragi hefur …
Hér má sjá mynd af fiskikörunum sem Steinar Bragi hefur sett á sölu. Ljósmynd/Aðsend

Steinar Bragi Sigurjónsson er ungur athafnamaður á sextánda aldursári úr Hafnarfirði sem auglýsti nýverið 130 fiskikör til sölu á Facebook-síðunni Brask og brall. Hann segir viðtökurnar hingað til hafa farið langt fram úr væntingum en þó séu enn mörg kör eftir.   

Í gær birti Steinar færslu á Facebook þar sem hann óskaði eftir tilboðum í 130 fiskikör sem hann sagðist þurfa að losna við sem fyrst. 

Hægt að láta ímyndunaraflið reika

Tilvalið í t.d. fiskvinnsluna, garðyrkjuna eða sem heiti eða kaldi potturinn sem þig hefur lengi dreymt um. Svo er hægt að nota þau í hvert annað sem þig dettur í hug,“ segir Steinar í færslunni sem hefur nú þegar fengið tugi athugasemda. Þá sé fólk helst að kaupa körin til þess að nota þau sem kalda potta eða fyrir búskap af ýmsu tagi. 

Steinar Bragi er ungur athafnamaður úr Hafnarfirði.
Steinar Bragi er ungur athafnamaður úr Hafnarfirði. Ljósmynd/Aðsend

Aðspurður hvernig standi á því að sextán ára drengur hafi 130 fiskikör í sinni vörslu segist Steinar vera að aðstoða föður sinn. 

„Pabbi er að hætta með fiskvinnslu og við höfum safnað að okkur alls konar körum í gegnum tíðina. Nú á að afhenda húsið og við erum í bobba yfir því hvað við eigum að gera við þessi kör,“ segir Steinar sem tók málin í eigin hendur eftir að móðir hann stakk upp á að setja körin á sölu. 

Hugsjónasamur sölumaður

Hann segir álverið í Straumsvík hafa upphaflega ætlað að festa kaup á körunum en hafi síðar hætt við. 

Hann segir vel hafa gengið hingað til en vekur athygli á því að enn geti áhugasamir orðið sér úti um fiskikör, því þau hafi ekki enn öll verið seld. Steinar bætir við að körin séu að finna á Eyrartröð 7 í Hafnarfirði, þar sem hann hyggst halda sölunni áfram í fyrramálið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg
26.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 101 kg
Karfi 1 kg
Samtals 102 kg
26.4.24 Ríkey MB 20 Handfæri
Ufsi 91 kg
Karfi 1 kg
Samtals 92 kg
26.4.24 Lea RE 171 Handfæri
Ufsi 181 kg
Samtals 181 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.4.24 393,93 kr/kg
Þorskur, slægður 26.4.24 307,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.4.24 202,84 kr/kg
Ýsa, slægð 26.4.24 78,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.4.24 110,49 kr/kg
Ufsi, slægður 26.4.24 133,49 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 26.4.24 156,12 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.4.24 Högni ÍS 155 Grásleppunet
Grásleppa 1.435 kg
Þorskur 54 kg
Rauðmagi 33 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.526 kg
26.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 101 kg
Karfi 1 kg
Samtals 102 kg
26.4.24 Ríkey MB 20 Handfæri
Ufsi 91 kg
Karfi 1 kg
Samtals 92 kg
26.4.24 Lea RE 171 Handfæri
Ufsi 181 kg
Samtals 181 kg

Skoða allar landanir »