Fiskeldi geti haft afleiðingar fyrir þorskstofninn

Ingibjörg G. Jónsdóttir, sjávarvistfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, segir áhrif mannsins á …
Ingibjörg G. Jónsdóttir, sjávarvistfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, segir áhrif mannsins á uppvaxtarsvæði þorsks meðal helstu áskorana stofnsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sjókvíaeldi og nýting kalkþörunga hafa áhrif á lífríkið á hafsbotni og getur raskað umhverfi þorskseiða sem um sinn hefur áhrif á þorskstofninn, sem er einn mikilvægasti nytjastofn landsins.

Þetta er meðal þess sem fram kom í máli Ingibjargar G. Jónsdóttur, sjávarvistfræðings á botnsjávarsviði Hafrannsóknastofnunar, í viðtali sem birt var í sjómannadagsblaði 200 mílna 3. júní. Var hún spurð hver helsta áskorun þorskstofnsins sé um þessar mundir.

„Ein helsta áskorun þorskstofnsins er líklega loftslagsbreytingar. Ef hitastig sjávar hækkar mun það sennilega leiða til norðlægari útbreiðslu þorsksins. En á sama tíma hefur hækkandi hitastig neikvæð áhrif á mikilvægar fæðutegundir þorsks; rækju og loðnu, sem báðar eru kaldsjávartegundir. Útbreiðsla og göngur loðnu hafa nú þegar breyst og hefur aðgengi þorsks að henni því minnkað,“ svaraði hún en sagði jafnframt áskoranir stofnsins flóknar og fjölmargar.

Fiskeldið hefur í för með sér áhrif á lífríkið á …
Fiskeldið hefur í för með sér áhrif á lífríkið á hafsbotni. mbl.is/Þorgeir Baldursson

„Annað sem vert er að nefna er uppeldissvæði þorsks en eftir sviflægt lirfustig tekur ungviði botn á landgrunninu og inni á fjörðum og flóum. Á þessum svæðum gætir áhrifa mannsins.“ Benti hún á að fiskeldinu fylgi aukinn lífrænn úrgangur sem geti haft neikvæð áhrif á lífríkið auk þess sem notkun lyfja hefur neikvæð áhrif á hryggleysingja sem eru mikilvæg fæða þorskseiða.

Þá er nýting kalkþörungasvæða sömuleiðis áhrifaþáttur en þau eru mikilvæg búsvæði seiða. Þá getur bygging mannvirkja eins og brúa haft áhrif á flæði sjávar inn í firðina, breytt setgerðum og minnkað aðgengi seiða að þessum búsvæðum.

Ítarlega var rætt við Ingibjörgu um stöðu þorskstofnsins og rannsóknir á botnsjávartegundum í síðasta blaði 200 mílna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »