Ánægja með þátt Breka og Þórunnar Sveinsdóttur

Það fékkst eitt og annað í trollið í síðari hluta …
Það fékkst eitt og annað í trollið í síðari hluta leiðangurs á Breka. Breki VE og Þórunn Sveinsdóttir VE tóku þátt í stofnmælingu Hafrannsóknastofnunar í október. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun/Kristín Jóhanna Valsdóttir

Samstarf áhafna á Breka VE-61 og Þórunni Sveinsdóttur VE-401 og starfsmanna Hafrannaóknastofnunar gekk vel þegar stofnmæling botnfiska fór fram í október en skipin sigldu samtals um 6.800 sjómílur. Um er að ræða í þriðja sinn sem Breki tekur þátt í svokölluðu haustralli stofnunarinnar en Þórunn Sveinsdóttir tók þátt í fyrsta sinn, bæði skipin eru gerð út af Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum.

„Verkefnin henta skipunum vel og samstarfið við Hafrannsóknastofnun er sérlega gott. Þar starfar fjöldi fagfólks á sínum sviðum sem gefandi er fyrir okkur að kynnast og mikilvægum vísindastörfum þeirra. Hafrannsóknir skipta auðvitað þjóðina alla gríðarmiklu máli,“ segir Sverrir Haraldsson, sviðsstjóri botnfiskssviðs Vinnslustöðvarinnar, í færslu á vef útgerðarinnar.

Dílamjóri og rækja sem fengust í leiðangrinum.
Dílamjóri og rækja sem fengust í leiðangrinum. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun/Arnar Björnsson

Ríkiskaup óskuðu eftir tilboðum í leigu á togurum vegn ahaustrallsins og var í kjölfarið gengið frá samningum, útskýrir Sverrir. „Vinnslustöðin hafði leigt Breka tvisvar sinnum í djúpsjávarþátt rallsins og bauð í ár í verkefnið í þriðja sinn og fékk. Við buðum að þessu sinni líka í grunnsjávarþáttinn fyrir Þórunn Sveinsdóttir og fengum.“

Hafrannsóknastofnun hefur stundað stofnmælingu að hausti frá árinu 1996 og hefur verið til grundvallar ráðgjafar stofnunarinnar um háarksafla fyrir fjölda tegunda á Íslandsmiðum. Samhliða stofnmælingum eru tekin ýmis sýni og sjávarhiti mældur svo eitthvað sé nefnt.

Toguðu á yfir 300 stöðvum

Breki lét frá bryggju 28. september og kom til heimahafnar á ný 20. október en Þórunn Sveinsdóttir hélt í leiðangur 2. október og kom til hafnar 24. október. Magnús Ríkharðsson var skipstjóri á Breka og Óskar Þór Kristjánsson skipstjóri á Þórunni Sveinsdóttur.

Fram kemur á vef Vinnslustöðvarinnar að skipting rannsóknarsvæðisins miðast við meginútbreiðslu þorsks, ýsu og gullkarfa á grunnslóð annars vegar og grálúðu og djúpkarfa á djúpslóð hins vegar. Djúpslóðin er á 400 til 1.500 metra dýpi.

Þá togaði Þórunn  Sveinsdóttir á 179 stöðvum á grunnslóðinni en Breki á 155 stöðvum á djúpslóð. Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson tók einnig þátt í rallinu og togaði á 38 stöðvum suðvestur og vestur af landinu. Á meðan Þórunn togaði á 25 til 422 metra dýpi, 174 dýpi að meðaltali, togaði Breki á 150 til 983 metra dýpi, 542 metra dýpi að meðaltali. Dýpsta stöðin í leiðangrinum var um 1.300 metrar og á slíku dýpi hafa ekki önnur skip í íslenska flotanum en Árni Friðriksson möguleika til að toga.

Freyr Arnaldsson sjávarútvegsfræðingur og gegnt honum er Bylgja Sif Jónsdóttir …
Freyr Arnaldsson sjávarútvegsfræðingur og gegnt honum er Bylgja Sif Jónsdóttir líffræðingur á bleika deginum. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun/Valur Bogason

„Magnús á Breka er auðvitað reyndur“

Klara Björg Jakobsdóttir fiskifræðingur er verkefnisstjóri haustrallsins og hún var jafnframt leiðangursstjóri á Árna Friðrikssyni. Valur Bogason sjávarvistfræðingur var leiðangursstjóri á Þórunni Sveinsdóttur og Hlynur Pétursson líffræðingur leiðangursstjóri á Breka.

Meðal þess sem skoðað er í haustrallinu er einnig plastmengun og rusl sem fæst í trollið. „Vöktun vegna plasthluta og rusls var sett á dagskrá rallsins á árinu 2017 að frumkvæði Karls Gunnarssonar líffræðings. Blessunarlega lítið kemur upp af rusli og aðskotahlutum, helst snærisbútar og brot úr veiðarfærum. Hins vegar getum við nú  vísað til þess að gögn séu til um þessa hlið umhverfisvöktunar við Ísland,“ segir Klara Björg.

Hún segir haustrallið hafi heilt yfir tekist vel. „Október er erfiður árstími og allra veðra von. Við fengum bæði gott og slæmt veður, það teldist fréttnæmt ef veðrið léki við okkur allan tímann!“

Hún segir samstarfið við skipstjórana á togurum Vinnslustðvarinnar hafa verið farsælt og gott. „Magnús á Breka er auðvitað reyndur og áhugasamur og ég heyri ekki betur en að Óskar Þór á Þórunni fái líka ágætiseinkunn hjá okkar fólki sem var þar um borð. Það skiptir svo miklu máli að vinna með skipstjórum sem leggja sig alla fram um að skila góðu verki. Áhöfnin öll smitast af áhuga yfirmanna sinna og árangurinn lætur ekki á sér standa þegar allir leggjast á eitt, áhafnir skipanna og starfsfólkið okkar.“

Óskar Þór Kristjánsson skipstjóri, í brú Þórunnar Sveinsdóttur.
Óskar Þór Kristjánsson skipstjóri, í brú Þórunnar Sveinsdóttur. Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson

6.800 mílur

Skipstjórarnir Magnús og Óskar Þór mega ekkert upplýsa um gang veiða enda eru upplýsingarnar trúnaðarmál og Hafrannsóknastofnun sem ræður för í þeim efnum. Óskar Þór segir þó það hafa komið honum á óvart hve útbreidd ýsan var á miðunum og fannst Magnúsi heldur meira af karfa á vestursvæðinu en í fyrra.

„Gaman var að fást við þetta í fyrsta sinn, fá að fara hringinn í kringum landið og inn í firði og flóa, inn fyrir mörk landhelginnar og nánast upp í fjörugrjót sums staðar. Við sigldum alls 3.800 sjómílur í rallinu og lönduðum fiski í alls 420 körum á Ísafirði, Dalvík og í Vestmannaeyjum,“ segir Óskar Þór.

„Rallið í ár var að miklu leyti endurtekið efni frá því í fyrra en veðurfarið erfiðara nú en þá. Við tókum veiðarfærin um borð í Vestmannaeyjum, hófum leiðangurinn strax og fórum vestur og norður um. Við sigldum rétt um 3.000 sjómílur í leiðangrinum, toguðum niður á 500 faðma og lönduðum í Neskaupstað og Vestmannaeyjum. Samstarfið við starfsfólk Hafrannsóknarstofnunar var afar gott og hefur verið í öllum verkefnum sem ég hef tekið þátt í,“ segir Magnús.

Siglingaleiðir skipanna þriggja í haustrallinu. Rannsóknaskipið Árni Friðriksson á bláu …
Siglingaleiðir skipanna þriggja í haustrallinu. Rannsóknaskipið Árni Friðriksson á bláu línurnar, Breki VE þær gulbrúnu og Þórunn Sveinsdóttir þær hvítu. Kort/Hafrannsóknastofnun
Áhöfnin á Breka við færibandaið í síðari hluta haustrallsins.
Áhöfnin á Breka við færibandaið í síðari hluta haustrallsins. Ljósmynd/Hafrannsóknastofnun/Kristín Jóhanna Valsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 28.4.24 442,03 kr/kg
Þorskur, slægður 28.4.24 575,91 kr/kg
Ýsa, óslægð 28.4.24 269,93 kr/kg
Ýsa, slægð 28.4.24 185,76 kr/kg
Ufsi, óslægður 28.4.24 155,67 kr/kg
Ufsi, slægður 28.4.24 185,80 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 28.4.24 175,45 kr/kg
Litli karfi 28.4.24 7,72 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 6.292 kg
Þorskur 77 kg
Sandkoli 38 kg
Grásleppa 27 kg
Samtals 6.434 kg
28.4.24 Bibbi Jónsson ÍS 65 Grásleppunet
Grásleppa 3.386 kg
Þorskur 35 kg
Samtals 3.421 kg
28.4.24 Þura AK 79 Handfæri
Þorskur 689 kg
Samtals 689 kg
28.4.24 Erla AK 52 Handfæri
Þorskur 792 kg
Ufsi 90 kg
Samtals 882 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 28.4.24 442,03 kr/kg
Þorskur, slægður 28.4.24 575,91 kr/kg
Ýsa, óslægð 28.4.24 269,93 kr/kg
Ýsa, slægð 28.4.24 185,76 kr/kg
Ufsi, óslægður 28.4.24 155,67 kr/kg
Ufsi, slægður 28.4.24 185,80 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 28.4.24 175,45 kr/kg
Litli karfi 28.4.24 7,72 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 6.292 kg
Þorskur 77 kg
Sandkoli 38 kg
Grásleppa 27 kg
Samtals 6.434 kg
28.4.24 Bibbi Jónsson ÍS 65 Grásleppunet
Grásleppa 3.386 kg
Þorskur 35 kg
Samtals 3.421 kg
28.4.24 Þura AK 79 Handfæri
Þorskur 689 kg
Samtals 689 kg
28.4.24 Erla AK 52 Handfæri
Þorskur 792 kg
Ufsi 90 kg
Samtals 882 kg

Skoða allar landanir »