Hornarfjarðartvist í trolli Sigurðar Ólafssonar

Starfsmenn veiðarfæragerðar Skinneyjar-Þinganess eru sérstaklega ánægðir með litinn á trolli …
Starfsmenn veiðarfæragerðar Skinneyjar-Þinganess eru sérstaklega ánægðir með litinn á trolli Sigurðar Ólafssonar. Ljósmynd/Veiðarfæragerð Skinneyjar-Þinganess

Það hefur verið nóg um að vera á veiðarfæraverkstæðum að undanförnu og hefur meðal annars veiðarfæragerð Skinneyjar-Þinganess unnið að yfirferð á loðnunót hjá Ásgrími Halldórssyni SF-250 og farið yfir síldartroll og poka. Auk þess sem smávægilegar viðgerðir hafa verið gerðar um borð í Jónu Eðvalds SF.

Fram kemur í færslu á Facebook-síðu veiðarfæragerðarinnar að haldið hefur verið áfram að koma notuðum veiðarfærum í gáma. Nýverið var níundi gámurinn fylltur og fer hann til endurvinnslu hjá Norfir í Litháen.

„Nýtt troll var smíðað fyrir Sigurð Ólafsson. Þetta var fótreipistroll sem byggt er á gömlum grunni með ýmsu Hornafjarðar tvisti,“ segir í færslunni þar sem vakin er sérstaklega athygli á fallegum lit netsins. „Algert afbragð“.

Töluvert af veiðarfærum eru send til endurvinnslu og hefur veiðarfæragerð …
Töluvert af veiðarfærum eru send til endurvinnslu og hefur veiðarfæragerð Skinneyjar-Þinganes fyllt níu gáma það sem af er ári. Ljósmynd/Veiðarfæragerð Skinneyjar-Þinganess

Togvíraskipti á Berki

Á dögunum var Börkur NK í togvíraskiptum og strekkingu hjá Hampiðjunni í Neskaupstað og er það þriðja skiptið á stuttum tíma, að því er segir í færslu á Facebook-síðu verkstæðisins.

Þá hafa verið unnar viðgerðir á trolli Margrétar EA sem landaði 1.300 tonnum af síld til vinnslu í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar á sunnudag. Að viðgerðunum fyrir Margréti loknum tóku við viðgerðir á trolli Beitis NK.

Börkur NK og Beitir NK við bryggju í Neskaupstað.
Börkur NK og Beitir NK við bryggju í Neskaupstað. Ljósmynd/Hampiðjan Neskaupstað
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »