Baldur Smári og John Gunnar til Arctic Fish

Baldur Smári Einarsson er nýr fjármálastjóri félagsins og John Gunnar …
Baldur Smári Einarsson er nýr fjármálastjóri félagsins og John Gunnar Grindskar er nýr framkvæmdastjóri eldis. Samsett mynd

Tveir nýir stjórnendur hafa verið ráðnir hjá fiskeldisfyrirtækinu Arctic Fish. Baldur Smári Einarsson er nýr fjármálastjóri félagsins og John Gunnar Grindskar er nýr framkvæmdastjóri eldis.

Fram kemur í tilkynningu frá Arctic Fish að Baldur Smári Einarsson taki til starfa 1. janúar, en hann hefur starfað hjá Arctic Fish frá árinu 2019 sem sérfræðingur í fjármáladeild. Baldur Smári er með Cand. Oecon gráðu í Viðskiptafræði af endurskoðunarsviði frá Háskóla Íslands og er sagður hafa víðtæka reynslu úr fjármálum og endurskoðun.

„Það er okkur mikil ánægja að Baldur Smári hafi viljað taka við sem fjármálastjóri félagsins. Hann hefur unnið hjá félaginu um árabil og þekkir því félagið vel og er með þá reynslu og þekkingu sem við leituðum að,“ segir Stein Ove Tveiten forstjóri Arctic Fish í tilkynningunni.

Stein Ove Tveiten framkvæmdastjóri Arctic Fish.
Stein Ove Tveiten framkvæmdastjóri Arctic Fish.

„Ég er þakklátur fyrir það traust sem yfirstjórn félagsins sýnir mér með því að fá að taka við þessu mikilvæga starfi. Arctic Fish hefur alla burði til að vaxa og dafna áfram og það er spennandi vegferð framundan. Ég er fæddur og uppalinn á Vestfjörðum og hef séð hvað fiskeldið hefur breytt miklu fyrir byggðirnar hér,“ segir Baldur Smári sem tekur við af Shirani Þórissyni sem sagði upp störfum í ágúst.

Ný staða yfir öllu eldi

Staða framkvæmdastjóra eldis er ný hjá Arctic Fish og mun John Gunnar hefja störf 1. desember. Allt seiða- og sjóeldi félagsins mun heyra undir starfssvið hans.

John Gunnar hefur mikla reynslu úr sjóeldi. Hann hóf störf hjá Mowi í Noregi 1992 og hefur síðan þá verið í ýmsum stöðum í sjóeldi um allan Noreg, nú síðast sem svæðisstjóri hjá Mowi í Mið-Noregi.

„Við erum sérstaklega ánægð að fá John Gunnar til liðs við okkur. Reynsla hans og þekking mun koma félaginu að miklu gangi í þeirri uppbyggingu sem er framundan “ segir Stein Ove Tveiten forstjóri Arctic Fish.

„Ísland er tiltölulega ný fiskeldisþjóð með sífellt meiri framleiðslu og mikil vaxtartækifæri. Arctic Fish hefur góðan grunn, stjórnar allri virðiskeðjunni sjálft, frá seiðum í sölu á fullunnri vöru sem felur í sér gríðarleg tækifæri.  Helsta verkefnið verður að þróa starfsemina áfram og tryggja bestu mögulegu vinnubrögð með dýravelferð og sjálfbærni að leiðarljósi. Ég er fullur tilhlökkunar að taka þátt í þeirri vegferð sem framundan er,“ segir John Gunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »