Margir bíða spenntir eftir jólasíldinni

Starfsmenn Síldarvinnslunnar hafa unnið hörðum hödnum að gerð jólasíldarinnar sem …
Starfsmenn Síldarvinnslunnar hafa unnið hörðum hödnum að gerð jólasíldarinnar sem sögð er einstaklega bragðgóð. Ljósmynd/Síldarvinnslan

Unnið hefur verið að því í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað að setja jólasíld fyrirtækisins í fötur. Fullyrt er á Facebooksíðu útgerðarinnar að „margir bíða spenntir eftir síldinni og telja hana ómissandi hluta jólahátíðarinnar.“

„Síldarvinnslusíldin þykir sú besta og fá allir, sem starfa hjá fyrirtækinu eða tengjast því, vatn í munninn þegar á hana er minnst. Síldin er framleidd eftir kúnstarinnar reglum og er farið eftir uppskrift sem hefur verið þróuð í áratugi. Framleiðsluferillinn er ekki gefinn nákvæmlega upp en unnt er að greina frá ýmsum þáttum hans,“ segir í færslunni.

Eina sem fæst uppgefið er að notuð er nýveidd norsk-íslensk gæðasíld til framleiðslunnar og er hún flökuð og skorin í bita. Bitarnir eru síðan látnir liggja í saltpækli í ákveðinn tíma og síðan í pækli með tilteknu magni af ediksýru. Að lokum er síldin sett í fötur og fara ýmsar kryddjurtir með í föturnar sem sjá um að framkalla hið himneska bragð.

Jólasíld Síldarvinnslunnar er girnileg þetta árið.
Jólasíld Síldarvinnslunnar er girnileg þetta árið. Ljósmynd/Síldarvinnslan

„Það er ávallt ákveðin stemmning hjá starfsfólki fiskiðjuversins þegar unnið er við jólasíldina og oft spyr fólk, sem getur vart beðið eftir hnossgætinu, um framleiðsluna. Ár eftir ár heyrist að síldin hafi aldrei verið betri og sýnir það að ávallt er verið að fullkomna framleiðsluna og gera hana ómótstæðilegri. Heyrst hefur að í ár sé jólasíldin einstakt ljúfmeti og er hún í reynd lokaþátturinn á afar vel heppnaðri síldarvertíð,“ segir í færslunni.

Auk starfsmanna og einstaklinga sem tengjast Síldarvinnslunni er líknarfélaginu Hosurnar einnig veitt ákveðið magn sem félagið selur, en Hosurnar er líknarfélag starfsmanna Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »