Erfitt hefur verið fyrir vísindamenn að meta aldur skíðishvala ólíkt öðrum hryggdýrum og hefur um nokkurt skeið verið nýtt greining á eyrnamerg hvalanna. Sú aðferð hefur þó ekki fengist staðfest fyrr en eftir að tókst að mæla geislakolefni frá kjarnorkusprengjum í eyrnamergnum.
Um þetta snýst ný rannsókn sem Dr. Guðjón Már Sigurðsson sjávarlíffræðingur hjá Hafrannsóknarstofnun er höfundur að, ásamt Sigríði Völu Finnsdóttur og Steven E. Campana. Sýna þau fram á með óyggjandi hætti að hægt er að nota geislakolefni frá kjarnorkusprengjum til að staðfesta aldur langreyða, að því er fram kemur í færslu á vef Hafrannsóknastofnunar.
„Ekki nóg með að það sé óvenjulegt að nýta kjarnorkusprengjur í þessum tilgangi, þá er það einnig óhefðbundið að eyrnamergur (e. ear plug) hvalanna er mældur en það er hann sem staðfestir aldur hvalanna,“ segir í færslunni.
Tannleysi flækir málin
Til að aldursgreina hryggdýr er oftast stuðst við greiningu á tönnum þeirra, en þar sem skíðishvalir hafa ekki tennur hefur verið mjög erfitt að meta aldur þeirra. Hefur því verið stuðst við talningu á lögum í eyrnamerg til aldursgreininga, en til þessa hefur ekki verið hægt að staðfesta þá aðferð.
Um nokkurt skeið hefur verið stuðst við magn geislakolefnis til að greina aldur kórala og langlífra fiska, en magn geislakolefnis jókst mikið í andrúmslofinu vegna prófun kjarnorkusprengja á sjötta og sjöundaáratug og dreifðist um heimshöfin.
Skoðaður var eyrnamergur í þremur langreyðum.
Ljóamyns/Hafrannsóknastofnun
„Í þessari rannsókn var geislakolefni greint í eyrnamerg þriggja langreyða sem veiddar voru við Ísland. Rannsóknin staðfestir að hægt að er að nota lög í eyrnamerg til aldursgreininga, þar sem skýrar breytingar verða í magni geislakolefnis fyrir um það bil 60 árum og sýnir þar af leiðandi að þessir hvalir voru á bilinu 65-85 ára gamlir. Þessir hvalir voru því elstu skíðishvalir sem rannsakaðir hafa verið, með staðfesta aldursgreiningu. Niðurstöðurnar styðja eldri möt, byggð á lögum í eyrnamerg, sem sýna að langreyðar geti orðið allt að 114 ára,“ segir í færslunni.