Vélstjórar undirrituðu samning við SFS

Fulltrúar Félags vélstjóra og málmtæknimanna og Sjómanna og velastjórafélags Grindavíkur …
Fulltrúar Félags vélstjóra og málmtæknimanna og Sjómanna og velastjórafélags Grindavíkur undirrituðu kjarasamninga við SFS í morgun. Ljósmynd/VM

Félag vélstjóra og málmtæknimanna (VM) og Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur (SVG) skrifuðu í morgun undir kjarasamning við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS), að því er fram kemur í tilkynningu á vef VM.

„Samningurinn er að nokkru leyti frábrugðinn þeim samningi sem félagsmenn í Sjómannasambandi Íslands samþykktu í atkvæðagreiðslu nýverið. Vinna við að útbúa kynningarefni vegna samningsins er nú í fullum gangi. Hann verður kynntur með ítarlegum hætti eins fljótt og auðið er,“ segir í tilkynningunni.

Fyrirhugað er að atkvæðagreiðsla um samninginn hefjist næstkomandi þriðjudag, en í febrúar á síðasta ári felldu félagsmenn VM og SVG kjarasamning við SFS.

Fjöldi breytinga á samningum

Í tilkynningu frá SFS segir um samninganna að unnið hafi verið að bættum kjörum og réttindum auk aðgerða til að auka traust við skipti á verðmætum úr sjó, líkt og í samningum SFS við Félag skipstjórnarmanna og Sjómannasamband Íslands.

„Greiðslur í lífeyrissjóð og kauptrygging hækka í samræmi við samninga á almennum vinnumarkaði, auk þess sem áhersla er lögð á aukið gagnsæi og upplýsingagjöf vegna fiskverðsmála,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að breytingarnar sem hafa verið gerðar frá því að samningur var felldur á síðasta ári séu meðal annars „að tímakaup hefur verið hækkað, verulega hefur verið aukið við svigrúm til uppsagnar samningsins, skerpt hefur verið á réttarstöðu í tengslum við slysa- og veikindarétt þeirra sem ráðnir eru með tímabundinni ráðningu og horfið hefur verið frá skipan gerðardóms við úrlausn mögulegra breytinga á skiptaprósentu ef ný tækni eða nýjar veiði- og verkunaraðferðir eru fyrirsjáanlegar.“

Jafnframt er í samningi VM að finna desemberuppbót sem gildir frá desember næstkomandi en slíkar greiðslur hafa ekki tíðkast í hlutskiptakerfi. Slíka uppbót er einnig að finna í samningi SVG en og hefst greiðsla hennar í desember 2028, en félagar SVG fá 400 þúsund króna eingreiðslu 1. apríl miðað við 160 lögskráningardaga á síðastliðnu ári.

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, telur að …
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, telur að komið hafi verið til móts við helstu óánægjuraddir í tengslum við samninginn sem felldur var á síðasta ári.

„Við höfum nú gert kjarasamninga við þau stéttarfélög sem gæta hagsmuna um 90% sjómanna á skipum fyrirtækja innan SFS. Við höfum notað tímann vel frá því síðustu samningar voru felldir og hlustað á hlutaðeigandi stéttarfélög og félagsmenn þeirra. Við teljum að við höfum komið vel til móts við helstu óánægjuraddir og lagt í töluvert meiri kostnað. Ég er ekki í vafa um að það verða skiptar skoðanir beggja vegna borðsins, en ég held að þessi samningur sé jákvætt skref á miklum óvissutímum. Með auknum fyrirsjáanleika í kjaramálum er unnt að tryggja betur sameiginlega hagsmuni sjómanna og fyrirtækjanna,“ segir Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, í tilkynningu samtakanna.

Vakin er athygli á að enn sé ósamið við Sjómannafélag Íslands. „Engar viðræður hafa staðið yfir milli þess félags og SFS, enda hefur ekki verið eftir þeim óskað.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »