Grásleppa klauf meirihluta sveitarstjórnar

Ekki var eining um vinnsluskyldu grásleppu innan meirihluta í sveitarstjórn …
Ekki var eining um vinnsluskyldu grásleppu innan meirihluta í sveitarstjórn Langanesbyggðar. mbl.is/Sigurður Bogi

Meirihluti H-lista í Langanesbyggð virðast hafa klofnað á sveitarstjórnarfundi í gær í afstöðu til vinnsluskyldu grásleppuafla sem landað er í sveitarfélaginu á grundvelli veiðiheimilda sem fást gegnum byggðakvóta.

Fyrir sveitarstjórn lágu tvær tillögur, önnur frá H-lista sem er í fjögurra manna meirihluta og hin frá L-lista sem er í þriggja manna minnihluta. Báðar tillögurnar féllu á jöfnu.

Þorsteinn Ægir Egilsson, fulltrúi L-listans, tók til máls á fundinum og benti á að engin fiskvinnsla hafi keypt grásleppu til vinnslu í sveitarfélaginu á síðasta fiskveiðiári. Auk þess væri ekkert sem benti til þess að breyting yrði þar á. „Fjölmargir kvótalitlir eða lausir grásleppubátar höfðu nýtt grásleppu sem mótframlag til byggðakvóta fram að því og vilja fulltrúar L-lista styðja við bakið á hnignandi smábátaútgerð,“ sagði hann.

Var lagt til að grásleppa sem landað er í sveitarfélaginu yrði undanþegin vinnsluskyldu, þannig yrði ekki krafist vinnslusamnings vegna þeirrar tegundar og að vigtun til byggðakvóta á hafnarvog í Langanesbyggð yrði metin nægjanleg til að uppfylla skilyrði gildandi reglugerðar um vinnsluskyldu.

Grásleppan er víða mikilvæg tekjulind fyrir smábátaútgerðir.
Grásleppan er víða mikilvæg tekjulind fyrir smábátaútgerðir. mbl.is/Líney sigurðardóttir

Báðar felldar á jöfnu

Tillagan var hins vegar felld á jöfnu er þrír fulltrúar minnihlutans kusu með tillögunni, þrír fulltrúar meirihlutans kusu gegn henni en fjórði fulltrúi meirihlutans Helga G. Henrýsdóttir sat hjá.

Var því næst borin upp tillaga meirihlutans (H-lista): „Sveitarstjórn mun ekki leggja til frekari breytingar á reglum um byggðakvóta. En hvetur bréfritara til að beita sér í þágu þess að vinnsla á grásleppu verði til staðar í byggðarlaginu. Jafnframt felur sveitarstjórn, sveitarstjóra að boða til opins umræðufundar um byggðakvóta í október næstkomandi, með sveitarstjórn til að ræða tillögur komandi fiskveiðiárs.“

Var þessi tillaga einnig felld á jöfnu er þrír fulltrúar meirihlutans greiddu atkvæði með tillögunni en fjórði fulltrúi meirihlutans sat aftur hjá, á meðan greiddu fulltrúar minnihlutans gegn tillögunni.

Ákveðið var að fresta málinu til næsta sveitarstjórnarfundar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »