„Áhrif loðnubrests eru enn mikil og víðtæk“

Áhrif loðnubrests gætir sérstaklega í þeim samfélögum þar sem loðnu …
Áhrif loðnubrests gætir sérstaklega í þeim samfélögum þar sem loðnu er landað og hún unnin. mbl.is/Gunnlaugur

„Ljóst er að loðnubrestur mun setja sitt mark á útflutningstekjur þjóðarbúsins af sjávarafurðum í ár. Vissulega eru áhrifin ekki nærri eins sýnileg á útflutningstekjur þjóðarbúsins í heild og á árum áður vegna aukinna umsvifa annarra útflutningsgreina. Engu að síður breytir það því ekki að áhrif loðnubrests eru enn mikil og víðtæk, þá sérstaklega á tekjur þeirra samfélaga þar sem útgerð loðnuskipa og vinnsla á landi er hvað mest, eins og á Austurlandi og í Vestmannaeyjum,“ segir í nýjustu greiningu Radarsins.

Þar er fjallað um útflutningsverðmæti sjávarafurða í mars síðastliðnum, en þær eru töluvert minni en í sama mánuði á síðasta ári. Einnig er mikill munur milli fyrsta ársfjórðungs þessa árs og síðasta ár og vegur loðnan þar þungt.

Þá er vakin athygli á því í greiningunni að keðjuverkun útflutnings sjávarafurða út í efnahagslífið eru töluveð.

„Í umræðunni um gjaldeyristekjur af einstaka útflutningsgreinum vill oft gleymast að það er ekki nóg að horfa einungis á brúttó útflutningstekjur, ef meta á framlag þeirra til gjaldeyrisöflunar eða verðmætasköpunar í hagkerfinu. Þar getur verið mikill munur á sem meðal annars má rekja til þess að útflutningsgreinar eru misháðar innfluttum aðföngum í sínum rekstri. Það hefur augljóslega áhrif á hversu miklar útflutningstekjur þær skapa í raun, nettó.“

Bent er á að 50 milljarða loðnuvertíð skili mun meira til þjóðarbúsins en neysla erlendra ferðamanna eða álútflutningur sem nemur sömu fjárhæð. „En hvað sem því líður er ljóst að þessar ólíku útflutningsgreinar, þ.e. sjávarútvegur, ferðaþjónusta og stóriðja, skipta allar máli fyrir gjaldeyrisöflun og verðmætasköpun í hagkerfinu.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »