Aðeins náð 1.200 strokulöxum

Mikill fjöldi stórra laxa sluppu úr sjókví á eldissvæði Lerøy …
Mikill fjöldi stórra laxa sluppu úr sjókví á eldissvæði Lerøy í Reitholmen. Ljósmynd/Mattilsynet

Norska fiskeldisfyrirtækinu Lerøy Midt (dótturfélag Lerøy Seafood) hefur verið gert að halda áfram aðgerðum til að endurheimta lax sem slapp úr sjókvíum þess á eldissvæðinu Reitholmen í Noregi í byrjun mánaðarins. Aðeins hefur tekist að veiða um 1.200 laxa en tilkunnt var 5. maí að um 14.000 laxar hefðu sloppið.

Norska fiskveiðistofnunin, Fiskeridirektoratet, segist í tilkynningu á vef sínum hafa í samráði við fulltrúa ríkisins í Þrændalögum, Statsforvalteren, gert kröfu um umfangsmiklar aðgerðir í Fillfirði og á nærliigjandi svæðum til að ná þeim laxi sem slapp. Hefur verið ákveðið að stækka svæðið sem reynt er að veiða laxinn og nær það aðgerðir nú til Storskogøya, Vassgåsholmen og Gunnarøya.

Greint er frá því að megnið af þessum 1.200 löxum sem veiðst hafa náðust af fiskiskipum sem Lerøy hefur tekið á leigu. Um 140 náðust á eftirlitsstöð við Agdenes.

Sérstakar áhyggjur hafa verið vegna laxins þar sem greinst hafa tveir sjúkdómar á eldissvæðinu þaðan sem þeir sluppu. Annars vegar nýrnasjúkdómur af völdum bakteríu og hins vegarbrissjúkdómur af völdum veiru.

Sluppu fjórtán þúsund?

Sem fyrr segir var upphaflega tilkynnt um strok 14.000 laxa úr sjókvíum Lerøy og voru þeir rúmlega sjö kíló að stærð. Í síðustu viku greindi hins vegar fyrirtækið frá því að það áætlaði nú færri laxa.

„Eftir að heildarfjöldi fiska hefur verið talinn á svæðinu og tekið sé tillit til upplýsinga um flutning fisks á milli kvía á meðan framleiðslu stóð hefur umfang sleppingarinnar metið 8.400 laxar með meðalþyngd 7,3 kíló,“ var haft eftir Harald Larssen, framkvæmdastjóra Lerøy Midt, í umfjöllun Intrafish.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »