Átakanlegt að missa fyrirtækið úr bænum

Gestur Þór vonast til þess að starfsmennirnir fái vinnu áfram …
Gestur Þór vonast til þess að starfsmennirnir fái vinnu áfram í Þorlákshöfn. mbl.is/Sigurður Bogi

Forseti bæjarstjórnar Ölfuss segir að það sé tilfinningalega átakanlegt að missa Ísfélagið úr Þorlákshöfn. Fyrr á árinu misstu níu manns vinnuna hjá fiskvinnslunni og á miðvikudaginn fengu þeir 26 starfsmenn sem eftir voru að vita að uppsögn væri í vændum.

„Okkur finnst þetta frekar sorglegt að fyrirtæki af þessari gerð sé að hverfa úr samfélaginu. Þetta er eitt af stærstu fiskvinnslu- og útgerðarfyrirtækjum í Þorlákshöfn,“ segir Gestur Þór Kristjánsson, forseti bæjarstjórnar Ölfuss, í samtali við mbl.is.

Vonar að fólk fái vinnu í Þorlákshöfn

Flestir starfsmennirnir sem eru að missa vinnuna eru búsettir í Þorlákshöfn.

„Vonandi fá þau vinnu hér áfram. Ég veit að þeir [Ísfélagið] hafa sjálfir verið að reyna hjálpa fólki við að fá vinnu annars staðar,“ segir Gestur.

Er vinnu að fá í Ölfusi?

„Já það er í raun ekkert atvinnuleysi þannig vonandi fær þetta fólk vinnu hérna áfram. Fólk sem er búið að vinna hérna lengi og skjóta hér rótum.“

Gestur Þór Kristjánsson, forseti bæjarstjórnar Ölfuss.
Gestur Þór Kristjánsson, forseti bæjarstjórnar Ölfuss. Ljósmynd/Aðsend

Hryggjarstykkið í vinnslunni horfið

Bæjarstjórn Ölfuss fékk formlega að vita af áformum Ísfélagsins á fimmtudag en degi á undan hafði félagið tilkynnt starfsmönnum sínum að uppsagnir væru í vændum í næstu viku.

Stefán Friðriks­son, for­stjóri Ísfé­lags­ins, sagði í samtali við mbl.is í morgun að eftir að humarveiðum var hætt árið 2021 hafi hryggjarstykkið í vinnslunni horfið.

Ísfé­lagið rek­ur frysti­hús og fiski­mjöls­verk­smiðju í Vest­manna­eyj­um og á Þórshöfn, frysti­hús í Þor­láks­höfn og rækju­verk­smiðju á Sigluf­irði. Stefán sagði að vinnsl­urn­ar í Vest­manna­eyj­um og á Þórshöfn anni því hrá­efni sem Ísfé­lagið hef­ur yfir að ráða.

Gestur nefnir að Þorlákshöfn sé upphaflega byggð upp í kringum útgerð og fiskvinnslu og því sé tilfinningalega átakanlegt að horfa á eftir fyrirtækinu fara úr bænum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »