„Þetta er bara sjálfstæðisbarátta þjóðarinnar“

Strandveiðimenn tendruðu neyðarblys fyrir framan Alþingi.
Strandveiðimenn tendruðu neyðarblys fyrir framan Alþingi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Strandveiðimönnum og stuðningsmönnum þeirra var heitt í hamsi þegar þeir komu saman á Austurvelli fyrr í dag og kröfðust að tryggt verði að strandveiðitímabilið vari út ágúst.

Strandveiðifélag Íslands stóð fyrir mótmælunum en gengið var frá Hörpu að Austurvelli þar sem hópurinn hitti matvælaráðherra fyrir og afhenti honum áskorun þess efnis að strandveiðar verði tryggðar út ágúst.

„Þetta er svona kröfu og samstöðufundur því það stefnir allt í það að okkar aflaheimildir klárist núna um mánaðarmótin júní/júlí, eða í blábyrjun júlí og strandveiðitímabil á að standa út ágúst. Við erum bara að biðja um að fá að veiða út ágúst eins og okkur hefur verið lofað,“ sagði Kjartan Páll Sverrisson formaður strandveiðafélagsins áður en gangan lagði af stað.

Hann segir strandveiðar umhverfisvænustu veiðarnar, að í þeim séu verðmætastu sjávarafurðirnar framleiddar og að veiðarnar skapi störf út um allt land.

Guðlaugur Jónsson, strandveiðimaður.
Guðlaugur Jónsson, strandveiðimaður. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Skiptir máli fyrir landsbyggðina

„Við erum að sýna samstöðu og sýna að við séum til og þetta skiptir gríðarlegu máli fyrir okkur og alla landsbyggðina,“ segir strandveiðimaðurinn Guðlaugur Jónasson sem mættur var á mótmælin.

„Það er mikið landsbyggðarmál að strandveiðar lifi og fyrir ferðamenn að sjá á hverju landið byggist,“ segir Guðlaugur

„Ég vil fá að vinna

Strandveiðimenn gengu fylgtu liði að Austurvelli.
Strandveiðimenn gengu fylgtu liði að Austurvelli. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Hallgerður Hauksdóttir strandveiðisjómaður mætti í gönguna til að berjast fyrir atvinnufrelsi: „Ég vil fá að vinna. Ég vil fá atvinnufrelsi og frelsi til að sjá fyrir mér með veiðum.“ 

„Það sést hér hvernig búið er að sölsa auðlindir þjóðarinnar og hvernig á að kirkja úr okkur getuna til að sjá fyrir okkur með veiðum.“ segir Hallgerður.

Sjálfstæðisbarátta þjóðarinnar

Þegar komið var á Austurvöll og búið að afhent matvælaráðherra áskorunina stilltu strandveiðisjómenn, sem margir voru klæddir í gula regnstakka, sér upp fyrir framan alþingi og tendruðu neyðarblys.

Ólafur Jónsson segir að um sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar væri að ræða.
Ólafur Jónsson segir að um sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar væri að ræða. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ólafur Jónsson, fyrrum sjómaður, sem mættur var til að styðja við bakið á strandveiðimönnum fylgdist með gjörningum og sagði við blaðamann:

„Þetta er bara sjálfstæðisbarátta þjóðarinnar. Þetta er ekkert annað. Ef við ætlum ekki að rísa upp gegn frekjunni og græðginni hver gerir það þá.“

„Þetta eru strandveiðimenn sem eru að sækja mannréttindi sín. Sameinuðu þjóðirnar dæmdu að hér yrði að vera 48 daga leyfi til strandveiða yfir sumartímann. En nú ætla spilltir ráðherrar og ráðamenn hér á Alþingi að meina þeim um fisk sem dugar þeim út 48 dagana,“ segir Ólafur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.5.25 399,85 kr/kg
Þorskur, slægður 23.5.25 620,81 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.5.25 395,89 kr/kg
Ýsa, slægð 23.5.25 403,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.5.25 148,18 kr/kg
Ufsi, slægður 23.5.25 237,77 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 23.5.25 172,33 kr/kg
Litli karfi 22.5.25 11,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.5.25 Björt SH 202 Grásleppunet
Grásleppa 3.395 kg
Samtals 3.395 kg
24.5.25 Svalur BA 120 Grásleppunet
Grásleppa 986 kg
Samtals 986 kg
24.5.25 Kvika SH 292 Grásleppunet
Grásleppa 867 kg
Samtals 867 kg
24.5.25 Signý SH 43 Grásleppunet
Grásleppa 3.116 kg
Samtals 3.116 kg
24.5.25 Fúsi SH 600 Grásleppunet
Grásleppa 2.303 kg
Samtals 2.303 kg
24.5.25 Garri BA 90 Handfæri
Þorskur 139 kg
Ufsi 42 kg
Samtals 181 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.5.25 399,85 kr/kg
Þorskur, slægður 23.5.25 620,81 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.5.25 395,89 kr/kg
Ýsa, slægð 23.5.25 403,20 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.5.25 148,18 kr/kg
Ufsi, slægður 23.5.25 237,77 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 23.5.25 172,33 kr/kg
Litli karfi 22.5.25 11,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.5.25 Björt SH 202 Grásleppunet
Grásleppa 3.395 kg
Samtals 3.395 kg
24.5.25 Svalur BA 120 Grásleppunet
Grásleppa 986 kg
Samtals 986 kg
24.5.25 Kvika SH 292 Grásleppunet
Grásleppa 867 kg
Samtals 867 kg
24.5.25 Signý SH 43 Grásleppunet
Grásleppa 3.116 kg
Samtals 3.116 kg
24.5.25 Fúsi SH 600 Grásleppunet
Grásleppa 2.303 kg
Samtals 2.303 kg
24.5.25 Garri BA 90 Handfæri
Þorskur 139 kg
Ufsi 42 kg
Samtals 181 kg

Skoða allar landanir »