Áhöfnum á Sturlu og Valdimar sagt upp

Sturla GK var fyrsta skipið sem landaði í Grindavík eftir …
Sturla GK var fyrsta skipið sem landaði í Grindavík eftir að bærinn var rýmdur. Áhöfninni hefur verið sagt upp en gert er ráð fyrir að þeim verði útvegað ný störf í kjölfar endurskiplagningar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Áhöfnum á togaranum Sturlu GK-12 og línuskipinu Valdimar GK-195, sem Þorbjörn gerir út, hefur verið sagt upp. Þetta staðfestir Gunnar Tómasson, framkvæmdastjóri Þorbjarnar, í samtali við 200 mílur.

Hann segir uppsagnirnar lið í endurskipulagningu veiðistjórnunar útgerðarinnar á komandi fiskveiðiári sem hefst 1. september næstkomandi og tengjast breytingarnar meðal annars komu nýs skips í flota félagsins, en í sumar kemur ný Hulda Björnsdóttir GK-11 til landsins.

Þá er gert ráð fyrir að skipverjunum á Sturlu og Valdimar verði útveguð önnur störf. „Við erum ekki að fækka sjómönnum,“ segir Gunnar.

Einnig uppsagnir í síðustu viku

Í byrjun síðustu viku var greint frá því að öllum 56 starfsmönnum í landvinnslu Þorbjarnar hefði verið sagt upp. Mátti rekja þær uppsagnir til tíðra truflana á framleiðslu vegna jarðhræringanna í Grindavík.

„Það var niðurstaða okkar að menn treysta sér ekki til að halda áfram eins og verið hefur og við ætlum að taka okkur góðan tíma til að endurskipuleggja okkur og vonum að þetta ástand fari að róast,“ sagði Gunnar við tilefnið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 26.7.24 548,75 kr/kg
Þorskur, slægður 26.7.24 540,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 26.7.24 373,46 kr/kg
Ýsa, slægð 26.7.24 153,60 kr/kg
Ufsi, óslægður 26.7.24 161,40 kr/kg
Ufsi, slægður 26.7.24 208,59 kr/kg
Djúpkarfi 21.6.24 304,40 kr/kg
Gullkarfi 26.7.24 543,91 kr/kg
Litli karfi 23.7.24 15,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.7.24 106,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

26.7.24 Hafrafell SU 65 Lína
Steinbítur 958 kg
Þorskur 196 kg
Keila 38 kg
Skarkoli 26 kg
Samtals 1.218 kg
26.7.24 Arnþór EA 37 Handfæri
Þorskur 782 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 915 kg
26.7.24 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet
Þorskur 756 kg
Ufsi 482 kg
Samtals 1.238 kg
26.7.24 Gísli EA 221 Handfæri
Þorskur 2.199 kg
Ufsi 26 kg
Samtals 2.225 kg

Skoða allar landanir »