Helgarferð á Egilsstaði er ein besta hugmynd sumarsins

Hér erum við Kolbeinn Ari Jóhannesson, sonur minn, að prófa …
Hér erum við Kolbeinn Ari Jóhannesson, sonur minn, að prófa ærslabelginn á Seyðisfirði. mbl.is/Helgi Jóhannesson

Að fara í helgarferð til Egilsstaða er frekar góð skemmtun enda þrá flestir einhverja tilbreytingu yfir sumartímann. Flogið var frá Reykjavíkurflugvelli og klukkutíma síðar vorum við lent á Egilsstöðum þar sem bílaleigubíll beið okkar svo við gætum brunað á milli staða og reynt að sjá allt! 

Það er reyndar bara hægt að sjá brot af því besta þegar farið er til Egilsstaða í helgarferð. Það var mikil upplifun fyrir syni mína tvo að fara sína jómfrúarferð í innanlandsflug því hingað til hafa ferðalögin innanlands snúist um að hossast um í bíl. Þegar við komum til Egilsstaða tékkuðum við okkur inn á Icelandair hótel Hérað áður en við reykspóluðum af stað á bílaleigubílnum. Okkur leiddist ekki eina mínútu. Kíktum á Skálann Diner sem er innréttaður eins og ekta amerískur diner, skoðuðum fólk, tjaldstæðið og fórum í Vök Baths.
Það er svona mikið fjör að hoppa.
Það er svona mikið fjör að hoppa. mbl.is/Helgi Jóhannesson

Svo keyrðum við til Seyðisfjarðar, löbbuðum um bæinn og hoppuðum frá okkur allt vit á ærslabelgnum í bænum. Það eru örugglega einhverjir sem líta á slíkan grip sem leiktæki fyrir börn en þessir ærslabelgir geta skemmt 43 ára gömlum konum mjög vel, sérstaklega ef þær eru nánast hættar að fara á djammið. Yngri syni mínum fannst þetta mikil upplifun og síðan við vorum í þessari ferð erum við að skoða ærslabelgi víða um land sem við höfum í hyggju að prófa.

Á Icelandair Hótel Hérað er sérlega góður morgunverður en þar …
Á Icelandair Hótel Hérað er sérlega góður morgunverður en þar geta gestir bakað sína eigin belgísku vöfflu. Við urðum að sjálfsögðu að prófa það.
Helgi Jóhannesson, sonur minn, fyrir framan bílaleigubílinn.
Helgi Jóhannesson, sonur minn, fyrir framan bílaleigubílinn.

Í þessari ferð fórum við líka til Eskifjarðar, Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar. Löbbuðum um og rannsökuðum svæðið, skoðuðum minnismerki um látna franska sjómenn á síðastnefnda staðnum. Við vorum dugleg að stoppa á leiðinni og skoða, anda og svo skiptumst við á að vera plötusnúðar í bílnum. Tónlist á ferðalögum er ekki síður mikilvæg en nesti enda kemur alltaf eitthvað nýtt í ljós þegar fólk ferðast saman.

Á Fáskrúðsfirði er minnisvarði um látna sjómenn sem vert er …
Á Fáskrúðsfirði er minnisvarði um látna sjómenn sem vert er að skoða.
Seyðisfjörður er fallegur bær.
Seyðisfjörður er fallegur bær.

Á milli bíltúra borðuðum við mikið af mjög góðum mat. Belgísku pönnukökurnar í morgunverðarhlaðborðinu á Icelandair hótel Hérað standa upp úr og líka hreindýrasteikin sem hægt er að fá þar. Þar borðuðum við líka kjúklingavængi, crème brûlée og ís með ávöxtum sem smakkaðist allt hræðilega vel. Svo fórum við í brunch á Skriðuklaustri og smökkuðum eina bestu frönsku laukböku sem við höfum smakkað en þar var líka hægt að fá hreindýrabollur, gómsætan fisk og lerkisveppasúpu sem er víst á barmi heimsfrægðar fyrir framúrskarandi bragð.

Áður en við lögðum af stað heim labbaði ég ein míns liðs niður að Lagarfljótinu, sem er fyrir neðan hótelið, og naut kyrrðarinnar sem þar var að finna. Næst ætla ég að stoppa lengur því ein helgi á Egilsstöðum og nágrenni er alls ekki fullnægjandi!

Það er gott að slaka á við Lagarfljótið.
Það er gott að slaka á við Lagarfljótið.
Hlaðborðið á Skriðuklaustri er engu líkt. Þar er hægt að …
Hlaðborðið á Skriðuklaustri er engu líkt. Þar er hægt að fá mjög ljúffengan mat.
Icelandair Hótel Hérað er á Egilsstöðum.
Icelandair Hótel Hérað er á Egilsstöðum.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert