Lát Jacksons staðfest

Skrifstofa réttarlæknisembættisins í Los Angeles staðfesti í kvöld, að poppstjarnan Michael Jackson væri látinn, fimmtugur að aldri. Jackson var úrskurðaður látinn klukkan 21:26 að íslenskum tíma eftir að hafa fengið hjartaáfall.   

Fred Corral, talsmaður embættisins, sagði við CNN, að lögregla hefði tilkynnt að Jackson hefði verið fluttur á sjúkrahús í dái en hringt var á neyðarlínuna í Los Angeles frá heimili Jacksons í Holmbly Hills. Lífgunartilraunir báru ekki árangur. 

Ekki væri vitað um dánarorsök en krufning muni væntanlega fara fram á morgun. Hins vegar hafi lögreglumenn sagt, að hjarta Jacksons hafi verið hætt að slá þegar hann var fluttur á sjúkrahúsið. 

Michael Jackson vann að undirbúningi tónleikaraðar sem átti að hefjast í London þann 13. júlí. Tónleikaröðin átti að marka endurkomu hans í tónlistarheiminn, en jafnframt að vera hans síðasta.  Jackson hafði ekki komið fram á tónleikum í yfir áratug. Hann hafði seinkað tónleikunum í London en talsmenn hans neituðu því að það stæði í tengslum við heilsu hans.

Umdeildur en vinsæll

Michael Jacson lifði einangruðu lífi eftir að hann var sýknaður af ákæru um kynferðiafbrot gegn ungum dreng árið 2005 og að hafa ráðgert að ræna drengnum. Þrátt fyrir sýknudóminn hafði ákæran alvarlegar afleiðingar fyrir feril Jackson.

Jackson var fæddur 29. ágúst 1958 og kom fyrst fram á sjónarsviðið ásamt fjórum eldri bræðrum sínum í Jackson Five poppsveitinni þar sem hann var aðalsöngvari. Þrátt fyrir miklar vinsældir minntist Jackson þessara ára sem fullum óhamingju og einmanaleika.

Michael Jackson gaf út fyrstu sólóplötuna sína „Off the Wall“ árið 1979 og seldist hún í 10 milljónum eintaka. Árið 1982 kom svo út platan „Thriller“ sem reyndist mest selda plata allra tíma en hún seldist í yfir 41 milljón eintaka. Platan „Bad“ kom út árið 1987 (20 milljón eintaka seld) og „Dangerous“ árið 1991 (21 milljón eintaka seld).  

Árið 1991 undirritaði Jackson samning við Sony Music sem hefur verið nefndur arðbærasti samningur tónlistarmanns. Hlutur Jackson var ekki gefinn upp en Sony mat sölumöguleikana á milljarð Bandaríkjadala.

Líf Michael Jackson var skrautlegt og var hann vinsælt umfjöllunarefni slúðurblaða m.a. vegna umtalsverðra lýtaaðgerða og ákæru um kynferðisofbeldi gegn ungum dreng sem var sett fram árið 1993 uns Jackson var sýknaður árið 2005.

Michael Jackson kvæntist Lisa Marie Presley, dóttur Elvis Presley árið 1994 en þau skyldu eftir tæp tvö ár. Hann kvæntist svo Debbie Rowe, hjúkrunarkonu sem hann kynntist er hann fór í lýtaaðgerð árið 1997. Þau eignuðust tvö börn, Prince Michael og Paris Michael Katherine áður en þau skildu árið 1999.

Jackson var með forræði yfir börnunum tveimur auk þess þriðja, Prince Michael II, sem Jackson eignaðist með óþekktri konu.

Michael Jackson á blaðamannafundi í Lundúnum nýlega.
Michael Jackson á blaðamannafundi í Lundúnum nýlega. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson