Vilhjálmur með áhyggjur af Harry

Vilhjálmur er sagður hafa áhyggjur af bæði Harry og Meghan.
Vilhjálmur er sagður hafa áhyggjur af bæði Harry og Meghan. AFP

Vilhjálmur Bretaprins er sagður áhyggjur hafa af Harry bróður sínum og Meghan, mágkonu sinni, eftir að þau lýstu erfiðleikum í sínu persónulega lífi í heimildarmynd um Afríkuferð þeirra. Heimildarmaður BBC segir að Vilhjálmur vilji bróður sínum allt hið besta. 

Vilhjálmur er sagður áhyggjufullur en vonar að það sé í lagi með Harry og Meghan. Heimildarmaðurinn sagði einnig að það liti út fyrir að hertogahjónin af Sussex, Harry og Meghan, væru á mjög viðkvæmum stað. 

Umrædd heimildarmynd var frumsýnd á sunnudaginn í Bretlandi en myndin fylgdi hjónunum eftir í Afríku fyrir stuttu. Harry og Meghan voru bæði hreinskilin í viðtölum í myndinni og talaði Meghan meðal annars um líðan sína og bresku slúðurblöðin og Harry um samband sitt við Vilhjálm bróður sinn. 

Meghan sagði í myndinni að það hefði verið erfitt að aðlagast lífinu í bresku konungsfjölskyldunni. 

„Þegar ég fyrst hitti núverandi eiginmann minn voru vinir mínir mjög ánægðir,“ sagði Meghan í myndinni. „En bresku vinir mínir sögðu við mig: „Ég er viss um að hann sé frábær en þú ættir ekki að gera þetta af því að bresku slúðurblöðin munu eyðileggja líf þitt“.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson