Sigurjón Sighvatsson, kvikmyndaframleiðandi og athafnamaður hefur framleitt meira en 30 kvikmyndir og sjónvarpsefni. Hann náði miklum frama á besta stað í heimi til að fást við stóra hluti í kvikmyndagerð, í Hollywood, en þar rætast sannarlega ekki draumar allra. Í næsta þætti af Með Loga segir hann frá því hvernig hann fór að því að koma sér áfram í Hollywood.
„Ef þú ætlar að koma þér eitthvað fyrir í þessum bransa þarna úti þá tekur það 10 ár,” segir Sigurjón í upplýsandi og eftirtektarverðu viðtalinu sem óhætt er að mæla með.
Þátturinn kemur í Sjónvarp Símans Premium á fimmtudag og verður sýndur sama dag línulegri dagskrá kl. 20:10.