Hætt saman aftur?

Kendall Jenner og Devin Booker eru sögð hætt saman.
Kendall Jenner og Devin Booker eru sögð hætt saman. Samsett mynd

Ofurfyrirsætan Kendall Jenner og körfuboltamaðurinn Devin Booker eru sögð vera hætt saman í annað sinn. Ástarævintýri þeirra hófst í apríl árið 2020, en samkvæmt heimildum People hættu þau saman í síðasta mánuði. 

Aðeins nokkrir mánuðir eru liðnir frá því þau hættu seinast saman, en í lok júní var greint frá því á vef E! News að fyrrverandi parið hafi upplifað erfiðleika og í kjölfarið ákveðið að fara sitt í hvora áttina. 

Mánuði síðar sáust þau saman í fríi á Havaí, en glöggir aðdáendur fyrirsætunnar komu auga á Booker í bakgrunni á myndbandi sem hún birti af ströndinni.

Setja ferilinn í forgang

Heimildarmaður People segir ástæðu sambandsslitanna vera afar annasamar dagskrár þeirra, og að þau hafi ákveðið að setja feril sinn í forgang. Þá talaði hann um krefjandi störf þeirra, en Jenner starfar sem fyrirsæta og á vörumerkið 818 Tequila á meðan Booker spilar körfubolta með Pheonix Suns. 

„Þau bera mikla ást og virðingu hvort fyrir öðru og óska alls hins besta,“ bætti heimildarmaðurinn við, en þau eru sögð hyggjast halda góðu sambandi þrátt fyrir sambandsslitin. 

Devin og Kendall sáust saman í byrjun september í New …
Devin og Kendall sáust saman í byrjun september í New York-borg. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú veist ekki hversu miklu þú kemur í verk ef þú bara hefst handa. Þú hefur aldrei farið troðnar slóðir og ættir ekkert að vera að byrja á því núna.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson