Hæstiréttur Bretlands hefur úrskurðað að bakaríi í Norður-Írlandi hafi verið heimilt að neita að baka köku með skilaboðunum „Styðjum hjónaband samkynhneigðra“. Hæstaréttardómararnir fimm voru einróma í niðurstöðu sinni, en neðri dómstólar höfðu dæmt bakaríið fyrir mismunun á grundvelli kynhneigðar.

Bakarískeðjan Asher‘s Baking Company neitaði árið 2014 að útbúa köku fyrir aðgerðasinnann Gareth Lee, sem sýna átti Sesamstrætis-brúðurnar Bert og Enie ásamt merki baráttuhópsins Queerspace og skilaboðunum „Styðjum hjónaband samkynhneigðra“.
Lee leitaði réttar síns og komst dómari í málinu að þeirri niðurstöðu að bakaríið hefði brotið gegn jafnréttislögum og sektaði það um 500 pund, jafnvirði um 70.000 íslenskra króna. Ashers áfrýjaði dómnum, sem var staðfestur á æðra dómstigi, en nú hefur Hæstiréttur snúið honum við.
Eigendur bakarísins hafa alltaf borið fyrir sig að neitunin hafi snúist um skilaboðin á kökunni, en ekki kynhneigð viðskiptavinarins.