Það hefur líklega ekki farið fram hjá bíóáhugafólki að Downton Abbey-mynd er væntanleg í bíó í september. Hægt er að heimsækja hefðarsetrið sem gegnir hlutverki kastala Crawley-fjölskyldunnar í þáttunum og nú bíómyndinni þegar flogið er til Lundúna.

Downton Abbey-hefðarsetrið er miðja þáttanna en hefðarsetrið heitir í rauninni Highclere-kastali. Kastalinn var notaður þegar þurfti að mynda Downton Abbey að utan auk þess sem mikið af innitökunum fór fram í kastalanum.
Kastalinn er á 2.000 hektara lóð og hefur verið heimili jarlsins af Carnarvon síðan 1679. Það er búið í kastalanum yfir vetrartímann en á sumrin er opið fyrir ferðamenn og fjölgaði þeim mikið í kjölfar góðs gengis þáttanna. Það er ekki ólíklegt að þeim muni fjölga aftur í kjölfar bíómyndarinnar. Kastalinn opnar dyr sínar á sumrin og lokar aftur í byrjun september.
Kastalinn er aðeins fyrir utan bæ sem heitir Newbury en kastalinn var valinn áður en staðsetning bæjarins í þáttunum var valin. Eins og oft er í kvikmyndagerð eru vegalengdir og staðsetningar ekki alltaf eins og lítur út fyrir í þáttunum.
Til þess að komast að kastalanum frá Lundúnum er hægt að fara í 45 mínútna langa lestarferð frá Paddington-lestarstöðinni í London að Newbury Station. Þaðan er best að taka stutta leigubílaferð að kastalanum.