Lögðu af stað til Nepal með 130 kíló

Fjallganga | 19. mars 2021

Lögðu af stað til Nepal með 130 kíló

Félagarnir Heim­ir Fann­ar Hall­gríms­son og Sig­urður Bjarni Sveins­son lögðu af staði frá Keflavíkurflugvelli til Nepal í morgun. Í Nepal ætla þeir að klífa Everest eftir langan undirbúning. Með ferðinni ætla þeir að safna áheitum fyrir Umhyggju – félag langveikra barna. 

Lögðu af stað til Nepal með 130 kíló

Fjallganga | 19. mars 2021

Heim­ir Fann­ar Hall­gríms­son og Sig­urður Bjarni Sveins­son ganga á topp …
Heim­ir Fann­ar Hall­gríms­son og Sig­urður Bjarni Sveins­son ganga á topp Ev­erest til góðs. Ljósmynd/Aðsend

Félagarnir Heim­ir Fann­ar Hall­gríms­son og Sig­urður Bjarni Sveins­son lögðu af staði frá Keflavíkurflugvelli til Nepal í morgun. Í Nepal ætla þeir að klífa Everest eftir langan undirbúning. Með ferðinni ætla þeir að safna áheitum fyrir Umhyggju – félag langveikra barna. 

Félagarnir Heim­ir Fann­ar Hall­gríms­son og Sig­urður Bjarni Sveins­son lögðu af staði frá Keflavíkurflugvelli til Nepal í morgun. Í Nepal ætla þeir að klífa Everest eftir langan undirbúning. Með ferðinni ætla þeir að safna áheitum fyrir Umhyggju – félag langveikra barna. 

Félagarnir stefna ekki á að koma heim fyrr en í júní og fóru vel búnir fyrir bæði langa og stranga ferð. Fylgjendur þeirra hafa fylgst með þeim pakka og í morgun greindu þeir frá því að þeir væru með 130 kíló af farangri meðferðis. 

Þegar ferðavefur mbl.is ræddi við Sigurð í janúar sagði hann þá félaga stefna á að toppa í lok maí en tímaramminn til þess að komast á toppinn er stuttur. Þeir hafa þurft að passa sig vel að veikjast ekki af kórónuveirunni og er flugferðin og veran á flugvöllum áhættusöm.

„Ef lang­veik börn hafa áhuga á því að senda inn drauma til okk­ar ætl­um við að taka þá með okk­ur í ferðalagið, lesa þá upp á fal­leg­um stöðum og reyna að taka þá með okk­ur alla leið upp á topp Ev­erest,“ seg­ir Sig­urður í byrjun árs.

All­ur ágóði söfn­un­ar­inn­ar renn­ur óskipt­ur til fé­lags­ins. Á heimasíðu Um­hyggju er hægt að leggja mál­efn­inu lið. Einnig er hægt að fylgj­ast með leiðangr­in­um og stöðu mála á Face­book og In­sta­gram.

Þeir Heimir og Sigurður lögðu af stað með mikinn farangur.
Þeir Heimir og Sigurður lögðu af stað með mikinn farangur. Skjáskot/Instagram
mbl.is