Þrjú smit innanlands – eitt utan sóttkvíar

Kórónuveiran Covid-19 | 9. apríl 2021

Þrjú smit innanlands – eitt utan sóttkvíar

Þrjú smit greindust innanlands í gær og greindust þau öll við einkennasýnatöku. Tvö þeirra voru í sóttkví þegar smitið greindist. Alls eru 103 í einangrun á Íslandi en 111 í sóttkví. 1.447 eru í skimunarsóttkví. Einn bíður niðurstöðu mótefnamælingar á landamærunum en ekkert annað smit greindist þar í gær. 

Þrjú smit innanlands – eitt utan sóttkvíar

Kórónuveiran Covid-19 | 9. apríl 2021

Fjölmargir hafa farið í skimun við Suðurlandsbraut frá því hertar …
Fjölmargir hafa farið í skimun við Suðurlandsbraut frá því hertar sóttvarnaaðgerðir tóku gildi 25. mars. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þrjú smit greindust innanlands í gær og greindust þau öll við einkennasýnatöku. Tvö þeirra voru í sóttkví þegar smitið greindist. Alls eru 103 í einangrun á Íslandi en 111 í sóttkví. 1.447 eru í skimunarsóttkví. Einn bíður niðurstöðu mótefnamælingar á landamærunum en ekkert annað smit greindist þar í gær. 

Þrjú smit greindust innanlands í gær og greindust þau öll við einkennasýnatöku. Tvö þeirra voru í sóttkví þegar smitið greindist. Alls eru 103 í einangrun á Íslandi en 111 í sóttkví. 1.447 eru í skimunarsóttkví. Einn bíður niðurstöðu mótefnamælingar á landamærunum en ekkert annað smit greindist þar í gær. 

Alls voru 1.1139 skimaðir inn­an­lands í gær. Á landa­mær­un­um voru 706 ein­stak­ling­ar skimaðir.

Núna eru 82 í ein­angr­un á höfuðborg­ar­svæðinu en í gær voru þeir 89. Tveir eru í ein­angr­un á Suður­nesj­um og 13 á Suður­landi en þar hefur fjölgað um einn í einangrun á milli daga. Þrjú smit eru á Austurlandi, tvö á Norður­landi eystra og eitt á Vest­ur­landi.

91 er í sótt­kví á höfuðborg­ar­svæðinu, þrír á Suður­nesj­um, fjórir á Suður­landi og tveir á Aust­ur­landi. Ellefu eru óstaðsett­ir í hús. 

Fjög­ur smit eru meðal barna á aldr­in­um 1-5 ára, 21 smit er á meðal barna á aldr­in­um 6-12 ára og fimm í ald­urs­hópn­um 13-17 ára. 

Í ald­urs­hópn­um 18-29 ára eru 16 smit. 30 smit eru í ald­urs­hópn­um 30-39 ára. 20 smit eru í ald­urs­hópn­um 40-49 ára. Fjög­ur smit eru í ald­urs­hópn­um 50-59 ára, eitt meðal fólks á sjö­tugs­aldri og tveir á átt­ræðis­aldri eru með Covid-19. 

Ný­gengi smita inn­an­lands á hverja 100 þúsund íbúa er nú 20,7 síðustu tvær vik­ur og 5,7 á landa­mær­un­um.

mbl.is