Þríeykið ávarpar þjóðina á morgun

Kórónuveiran Covid-19 | 25. janúar 2022

Þríeykið ávarpar þjóðina á morgun

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar á morgun, miðvikudag, klukkan 11.

Þríeykið ávarpar þjóðina á morgun

Kórónuveiran Covid-19 | 25. janúar 2022

Alma Möller landlæknir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir Víðir Reynisson
Alma Möller landlæknir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir Víðir Reynisson mbl.is/Eggert Jóhannesson

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar á morgun, miðvikudag, klukkan 11.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar á morgun, miðvikudag, klukkan 11.

Þetta segir í tilkynningu frá Almannavörnum.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir, Alma Möller landlæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn Almannavarna fara yfir stöðu mála vegna faraldursins.

Katrín Jakobsdóttir sagði í samtali við mbl.is í dag að stefna stjórnvalda í faraldrinum tæki nú miklum breytingum. Nú verði ekki stuðst við aðferðafræði temprunar, sem gengur út á að hemja fjölgun smita.

Katrín sagði að nú yrði horft til þess að taka fyrstu skrefin í átt að opnun samfélagsins og er breytingin á sóttkví til marks um það en með breytingunni þarf fólk sem útsett er fyrir smiti utan heimilis einungis að fara í smitgát í stað sóttkvíar.

Þá verða börn og unglingar algjörlega undanþegin reglum um smitgát.

Um 13 þúsund eru nú í sóttkví.

mbl.is