Covid-19 tilfellum fjölgar á ný

Kórónuveiran Covid-19 | 10. júní 2022

Covid-19 tilfellum fjölgar á ný

Undanfarna daga hefur tilfellum verið að fjölga og greinast nú 150 til 200 einstaklingar daglega með Covid-19. Flest tilfelli sem greinast eru Ómíkron afbrigðið BA.2 en einnig greinist afbrigðið BA.5.

Covid-19 tilfellum fjölgar á ný

Kórónuveiran Covid-19 | 10. júní 2022

Aukning tilfella gæti að hluta skýrst af aukningu tekinna sýna.
Aukning tilfella gæti að hluta skýrst af aukningu tekinna sýna. mbl.is/Kristinn Magnússon

Undanfarna daga hefur tilfellum verið að fjölga og greinast nú 150 til 200 einstaklingar daglega með Covid-19. Flest tilfelli sem greinast eru Ómíkron afbrigðið BA.2 en einnig greinist afbrigðið BA.5.

Undanfarna daga hefur tilfellum verið að fjölga og greinast nú 150 til 200 einstaklingar daglega með Covid-19. Flest tilfelli sem greinast eru Ómíkron afbrigðið BA.2 en einnig greinist afbrigðið BA.5.

Þó hefur hlutfall jákvæðra sýna haldist stöðugt síðustu vikur um 7 til 10 prósent en það segir til hve margir sem fara í próf greinast með sjúkdóminn. Þannig gæti aukning tilfella að hluta skýrst af aukningu tekinna sýna. 

Hérlendis hefur um helmingur íbúa greinst opinberlega með Covid-19 þó að líklegt sé að mun fleiri hafi smitast. Ekki hefur sést aukning á endursmitum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embætti landlæknis.

Átta liggja inni á Landspítala með veiruna

Þar kemur jafnframt fram að enn sé yfirlýstur heimsfaraldur. „Tilfellum og dauðsföllum COVID-19 í heiminum hefur fækkað en hins vegar hefur sýnatökum einnig fækkað mikið.“

Vart hefur verið við aukningu á komum sjúklinga í áhættuhópum með Covid-19 á göngudeild Landspítala til vökva- og lyfjagjafar og nú eru átta manns inniliggjandi með veiruna, þar af einn á gjörgæslu.

Minnir á fjórðu sprautuna

Sóttvarnalæknir hvetur alla til að þiggja bólusetningu gegn Covid-19. „Allir 16 ára og eldri ættu að vera búnir að fá þrjár sprautur. Allir 80 ára og eldri, allir íbúar hjúkrunarheimila og allir sem hafa undirliggjandi áhættuþætti ættu að þiggja fjórðu sprautu.“

Einnig geta aðrir sem vilja beðið um fjórðu sprautuna. Fjórðu sprautu má gefa fjórum mánuðum eftir þriðju sprautu en mælt er með að bíða í minnst þrjá mánuði eftir Covid-19 sýkingu með að fara í bólusetningu.

„Rannsóknir hafa ítrekað sýnt ávinning af bólusetningu hvað varðar vörn gegn alvarlegum veikindum og dauða. Þá eru aukaverkanir bólusetningar mun minni en aukaverkanir og afleiðingar COVID-19 sjúkdómsins.“

Þá minnir embættið fólk á að gæta að persónulegum sóttvörnum með því að sinna handþvotti, virða nándarmörk, hósta og hnerra í klút eða olnbogabót, lofta vel út, nota andlitsgrímur við tilteknar aðstæður og fara í sýnatöku ef einkenni sjúkdómsins verður vart.



mbl.is