Fulltrúar frá Verslunarmannafélagi Reykjavíkur munu mæta til fundarins hjá Ríkissáttasemjara á morgun en þar verða einnig samninganefndir Starfsgreinasambandsins og Landsambands verslunarmanna auk Samtaka atvinnulífsins.

Kjaraviðræðum var frestað síðasta föstudag þar til á morgun. Þá hafði komið upp sú staða að VR hafði slitið viðræðum við SA eins og fram kom á föstudag.
„Ég var boðaður á fundinn á morgun og ætla að mæta. Ríkissáttasemjari vildi boða okkur á fundinn og ég verð að sjálfsögðu við því,“ sagði Ragnar þegar mbl.is ræddi við hann í dag.
„Efnislega hefur ekkert breyst. Þótt viðræður fari í þennan farveg þá höldum við áfram að reyna. Við erum áfram boðuð á fundi og verkefnið fer ekki frá okkur. Við ætlum að mæta á fundinn á morgun og tökum stöðuna eftir þann fund. Við erum á fullu að vinna okkar vinnu.“
Ragnar segir ekki tímabært að fara nákvæmlega út í áherslur VR á opinberum vettvangi en mest áhersla verður lögð á millitekjuhópana.
„Varðandi hópana hjá okkur innan VR þá viljum við leggja meiri áherslu á millitekjuhópana. Það hefur komið skýrt fram í okkar kröfugerð að nú sé röðin komin að þeim. Við höfum líka fundið samhljóm með kröfum iðnaðarmanna þótt sambandið á milli allra landsambanda og félaga sé einnig gott,“ sagði Ragnar Þór.