Samningafundi BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga lauk eftir miðnætti í nótt. Boðað hefur verið til annars fundar klukkan 13 í dag.

Þetta hefur Rúv eftir Sonju Ýr Þorbergsdóttir, formanni BSRB, og sagði hún í viðtali við fréttastofu að deilan væri að þokast í rétta átt, enn bæri þó nokkuð á milli.
Í þessari viku hafa um 900 manns lagt niður störf í 11 sveitarfélögum. Gangi ekkert í viðræðum ætlar BSRB enn að herða aðgerðir sínar á mánudaginn kemur.
Uppfært 8:25
Fundurinn er klukkan 13 í dag, en ekki klukkan 11 líkt og stóð áður í fréttinni.