Bogi Nils: Stærsta flugáætlun í sögu Icelandair

Á ferðalagi | 2. nóvember 2023

Bogi Nils: Stærsta flugáætlun í sögu Icelandair

Áfangastaðirnir Halifax og Pittsburgh bætast við flugáætlun Icelandair næsta sumar. Flugáætlunin fyrir árið 2024 er sú umfangmesta í sögu félagsins. Félagið mun fljúga til yfir 50 áfangastaða og starfrækja þrjá tengibanka með mismunandi brottfarartímum innan dagsins að því fram kemur í fréttatilkynningu. 

Bogi Nils: Stærsta flugáætlun í sögu Icelandair

Á ferðalagi | 2. nóvember 2023

Bogi Nílsson, forstjóri Icelandair.
Bogi Nílsson, forstjóri Icelandair. mbl.is/Árni Sæberg

Áfangastaðirnir Halifax og Pittsburgh bætast við flugáætlun Icelandair næsta sumar. Flugáætlunin fyrir árið 2024 er sú umfangmesta í sögu félagsins. Félagið mun fljúga til yfir 50 áfangastaða og starfrækja þrjá tengibanka með mismunandi brottfarartímum innan dagsins að því fram kemur í fréttatilkynningu. 

Áfangastaðirnir Halifax og Pittsburgh bætast við flugáætlun Icelandair næsta sumar. Flugáætlunin fyrir árið 2024 er sú umfangmesta í sögu félagsins. Félagið mun fljúga til yfir 50 áfangastaða og starfrækja þrjá tengibanka með mismunandi brottfarartímum innan dagsins að því fram kemur í fréttatilkynningu. 

Flogið verður daglega til 28 áfangastaða í Evrópu og Norður-Ameríku og þar af verður boðið upp á fleiri en eitt daglegt flug til 19 þeirra. Halifax og Pittsburgh bætast við sem áfangastaðir næsta sumar og tíðni verður aukin til fjölda áfangastaða. Tengimöguleikar innan leiðakerfisins verða um 800 og mun fleiri í gegnum samstarfssamninga við önnur flugfélög. Á árinu 2024 er gert ráð fyrir að framboðnum sætiskílómetrum (ASK) fjölgi um að minnsta kosti 10% frá fyrra ári.

Þrjár Boeing 737 MAX 8 flugvélar bætast í flota félagsins á næsta ári. Flugflotinn í farþegafluginu mun þá samanstanda af 42 flugvélum, þar af 21 af gerðinni 737 MAX.

Halifax og Pittsburgh nýir áfangastaðir

Icelandair kynnir nú í fyrsta sinn til sögunnar flug til Pittsburgh sem verður tólfti áfangastaður félagsins í Bandaríkjunum. Flogið verður fjórum sinnum í viku frá miðjum maí til októberloka. Pittsburgh er önnur stærsta borg Pennsylvaníu og liggur á bökkum þriggja fljóta – er fyrir vikið kölluð borg brúanna. Borgin hefur lengi verið kennd við stál og iðnað en hún býr engu að síður yfir sjarma menningar og fjölda fagurgrænna almenningsgarða.

Þá verður, eftir nokkurra ára hlé, boðið upp á þrjár ferðir á viku til Halifax í Kanada. Flug hefst 31. maí og verður flogið fram í miðjan október. Halifax er höfuðborg Nova Scotia, héraðs á austurströnd Kanada. Hún er í senn lifandi hafnarborg og iðandi miðstöð verslunar og viðskipta.

Pittsburgh er kölluð borg brúanna.
Pittsburgh er kölluð borg brúanna. Ljósmynd/Unsplash.com/Vidar Nordli-Mathisen

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, er spenntur fyrir komandi ári. 

„Við kynnum með ánægju metnaðarfulla flugáætlun fyrir næsta sumar og þá stærstu í sögu félagsins. Flugflotinn okkar heldur áfram að stækka og við bætum við þremur nýjum, hagkvæmum og umhverfisvænum Boeing 737 MAX flugvélum á næsta ári. Það er frábært að bæta við tveimur nýjum áfangastöðum í N-Ameríku og auka tíðni flugs verulega til annarra áfangastaða.

Norður-Ameríku markaður hefur verið mjög sterkur og til marks um það eru Bandaríkjamenn nú í efsta sæti yfir fjölda ferðamanna sem sækja okkur heim. Reynslumikið starfsfólk, yfirgripsmiklir söluinnviðir, sterkt alþjóðlegt vörumerki ásamt verðmætum samstarfssamningum við önnur flugfélög gera félaginu mögulegt að halda sókn sinni áfram og grípa þau tækifæri sem til staðar eru,“ segir Bogi Nils tilkynningu. 

mbl.is