Valentínusardagur nálgast óðfluga, dagur helgaður ástinni. 14. febrúar ár hvert er Valentínusardagurinn haldinn hátíðlegur víðs vegar um allan heim en hvað á fólk að gera af sér á degi Valentínusar, þessum rómantískasta degi ársins?
Valentínusardagur nálgast óðfluga, dagur helgaður ástinni. 14. febrúar ár hvert er Valentínusardagurinn haldinn hátíðlegur víðs vegar um allan heim en hvað á fólk að gera af sér á degi Valentínusar, þessum rómantískasta degi ársins?
Valentínusardagur nálgast óðfluga, dagur helgaður ástinni. 14. febrúar ár hvert er Valentínusardagurinn haldinn hátíðlegur víðs vegar um allan heim en hvað á fólk að gera af sér á degi Valentínusar, þessum rómantískasta degi ársins?
Mörgum pörum finnst upplagt að halda af stað í rómantískt ferðalag til að njóta samneytis, en fátt jafnast á við ferðalag með betri helmingnum.
Ferðavefurinn Condé Nast Traveller tók nýverið saman lista yfir rómantískustu áfangastaði í heimi í þeirri von um að hjálpa elskendum að finna hinn kjörna áfangastað. Ísland komst á lista.
Amalfi er eitt af þessum svæðum sem þú hreinlega getur ekki annað en hrifist af, en svæðið er eins og listaverk. Bæjarþorpið er einstaklega sjarmerandi og býr yfir gamaldags þokka.
Svæðið er þekkt fyrir einstakan og litríkan arkitektúr, líflegt götulíf, ljúffengan mat, fallega stemningu og ómótstæðileg útsýni. Fullkomið til að fagna ástinni.
Eyríkið í Indlandshafi er einstaklega rómantískur staður og hefur lengi verið vinsæll áfangastaður fyrir pör. Litadýrðin á Maldíveyjum er engu öðru lík en fegurð eyjanna er hreint út sagt ólýsanleg.
Eyjurnar eru sannkallaður skemmtigarður fyrir fullorðna þar sem ævintýrin bíða.
Santorini er frábær eyja fyrir þá sem vilja verja rómantískum stundum með ástinni sinni. Eyjan einkennist af sögulegum arkitektúr, einstöku landslagi og töfrandi sólsetri sem saman gera rómantískar stundir, rómantískari.
Það er fátt rómantískara en að ganga um götur Parísar, sem er þekkt sem borg ástarinnar. Í þessari sögufrægu borg er margt að sjá, enda borg sem er stútfull af lifandi menningu, fallegum kennileitum og dásamlegri matarsenu.
Flest okkur hafa hugsað það sama síðastliðna daga, flýja kuldann, óveðrið og skammdegið. Íslendingar hafa flúið unnvörpum í sólina og flest til Tenerife.
Ef þig langar að stinga af með ástinni þinni í sólríkt og ævintýralegt ástarfrí þá er Marrakech áfangastaður til að skoða. Borgin býr yfir mikilli fegurð, bragðmiklum mat og fjölbreyttri afþreyingu.
Gullnar strendur Mexíkó hafa lengi heillað ástfangin pör sem vilja sleikja sólina. Tulum, ekki þekktasti áfangastaður í Mexíkó, er alltaf að verða vinsælli og vinsælli, en borgin býr yfir mikilli fegurð, litadýrð, himneskum ströndum, dásamlegri tónlistarsenu og dýrlegri matarmenningu.
Það er yndislegt að gerast ferðamaður á heimaslóðum, skoða landið sitt. Ísland býður upp á rómantík og ævintýri, en skammdegið kallar á notaleg kvöld uppi í sófa með rauðvínsglas eða kúr fyrir framan arininn á köldu vetrarkvöldi.
Landið okkar er sneisafullt af mögnuðum náttúruperlum og rómantískur göngutúr í snævi þakinni borg eða fjallshlíð er yndisleg leið til að verja Valentínusardegi.