5 ódýr og fantaflott hótel í Evrópu

Spánn | 4. september 2023

5 ódýr og fantaflott hótel í Evrópu

Það getur verið erfitt að finna gistingu í ódýrari kantinum, en það er þó enn erfiðara að finna gistingu sem gleður augað án þess að tæma alveg úr buddunni. Þegar farið er í frí þá getur gistingin skipt sköpum, enda allt önnur stemning sem fylgir því að gista á fallegu hóteli. 

5 ódýr og fantaflott hótel í Evrópu

Spánn | 4. september 2023

Ferðavefurinn tók saman fimm fantaflott hótel á hagstæðu verði í …
Ferðavefurinn tók saman fimm fantaflott hótel á hagstæðu verði í Evrópu. Samsett mynd

Það getur verið erfitt að finna gistingu í ódýrari kantinum, en það er þó enn erfiðara að finna gistingu sem gleður augað án þess að tæma alveg úr buddunni. Þegar farið er í frí þá getur gistingin skipt sköpum, enda allt önnur stemning sem fylgir því að gista á fallegu hóteli. 

Það getur verið erfitt að finna gistingu í ódýrari kantinum, en það er þó enn erfiðara að finna gistingu sem gleður augað án þess að tæma alveg úr buddunni. Þegar farið er í frí þá getur gistingin skipt sköpum, enda allt önnur stemning sem fylgir því að gista á fallegu hóteli. 

Ferðavefur mbl.is tók því saman fimm fantaflott hótel á góðu verði í Evrópu sem ættu að falla vel í kramið hjá hönnunarunnendum. 

7 Islas Hotel

Þetta hótel er vel staðsett í Madríd á Spáni, en staðsetningin þykir ein sú besta til að versla í borginni. Rými hótelsins voru hönnuð með svokallaðri Bauhaus-minimalík í huga og eru húsmunir úr náttúrulegum efnum áberandi. 

Nóttin á hótelinu kostar frá rúmlega 14 þúsund krónum.

Skemmtileg hönnun einkennir hótelið.
Skemmtileg hönnun einkennir hótelið. Ljósmynd/Booking.com

Maison Acacia

Í Provence í Frakklandi er að finna afar sjarmerandi gistiheimili í eigu ljósmyndarans Léa Dominguez og innanhússhönnuðarins Thomas Lecointe. Einstök fagurfræði einkennir gistiheimilið sem er á fjórum hæðum og var reist á 18. öldinni.

Nóttin kostar frá rúmlega 14 þúsund krónum.

Það er mikill sjarmi yfir gistiheimilinu.
Það er mikill sjarmi yfir gistiheimilinu. Ljósmynd/Airbnb.com

Sir Savigny

Þetta heillandi hönnunarhótel er staðsett á besta stað í Berlín í Þýskalandi. Herbergin eru skemmtilega upp sett með hinum ýmsu húsmunum sem koma á óvart en smellpassa samt inn í rýmið. Það er því óhætt að segja að dvöl á hótelinu sé mikil upplifun.

Nóttin á hótelinu kostar frá tæplega 15 þúsund krónum.

Hótelið kemur sífellt á óvart með skemmtilegri og óvæntri hönnun.
Hótelið kemur sífellt á óvart með skemmtilegri og óvæntri hönnun. Ljósmynd/Booking.com

Casa Brava

Í Algarve í Portúgal er að finna sérlega fallegt og róandi gistiheimili sem er þar að auki vistvænt. Hönnunin ætti að falla vel í kramið hjá þeim sem eru í leit að einfaldleika og hugarró í fríinu, en þar er notaleg stemning í fyrirrúmi. 

Nóttin kostar frá tæplega 20 þúsund krónum.

Einfaldleikinn spilar lykilhlutverk á gistiheimilinu.
Einfaldleikinn spilar lykilhlutverk á gistiheimilinu. Ljósmynd/Booking.com

Au Bout Du Verger

Á Île-de-France-svæðinu í Frakklandi er að finna einstakt sjö svefnherbergja gistihús sem er sannkölluð hönnunarperla. Gisthúsið opnaði í október síðastliðnum, en það var innréttað í hinum vinsæla Wabi-Sabi stíl.

Nóttin kostar frá rúmlega 22 þúsund krónum. 

Gistiheimilið er sannkölluð hönnunarperla.
Gistiheimilið er sannkölluð hönnunarperla. Ljósmynd/Booking.com
mbl.is