Á einstökum útsýnisstað við Meðalfellsvatn í Kjósinni er að finna töfrandi sumarhús sem er í eigu Margrétar Ásgeirsdóttur fjárfestis. Aukin lofthæð og stórir gólfsíðir gluggar gefa húsinu lúxus yfirbragð og veita guðdómlegt útsýni yfir vatnið og til fjalla.

Sumarhúsið er til útleigu á bókunarvef Airbnb og kostar nóttin þar í júlímánuði 775 bandaríkjadali sem nemur rúmum 106 þúsund krónum á gengi dagsins í dag.
Verðmiðinn virðist þó breytast eftir árstíðum, en í febrúar kostar nóttin 415 bandaríkjadali, eða um 57 þúsund krónur.
Húsið hefur verið innréttað á sjarmerandi máta þar sem náttúruleg litapalletta og efniviður eru í forgrunni. Eldhús og stofa eru samliggjandi í rúmgóðu alrými með glugga á þrjá vegu.
Í eldhúsinu er falleg stílhrein dökk innrétting, en það sem stendur þó upp úr er glugginn og útsýnið sem gerir það að verkum að slegist verður um uppvaskið.