Talandi hrafn í Hvammssveit vekur athygli á TikTok

Furðulegt á ferðalögum | 17. janúar 2024

Talandi hrafn í Hvammssveit vekur athygli á TikTok

Hrafninn Krummi hefur vakið athygli á samfélagsmiðlinum TikTok eftir að Rebecca Cathrine Kaad Ostenfeld, bóndi í Hólum í Hvammssveit í Dölunum, birti myndband af honum að tala. 

Talandi hrafn í Hvammssveit vekur athygli á TikTok

Furðulegt á ferðalögum | 17. janúar 2024

Rebecca og Krummi.
Rebecca og Krummi. Ljósmynd/Ágúst Elí Ágústsson

Hrafninn Krummi hefur vakið athygli á samfélagsmiðlinum TikTok eftir að Rebecca Cathrine Kaad Ostenfeld, bóndi í Hólum í Hvammssveit í Dölunum, birti myndband af honum að tala. 

Hrafninn Krummi hefur vakið athygli á samfélagsmiðlinum TikTok eftir að Rebecca Cathrine Kaad Ostenfeld, bóndi í Hólum í Hvammssveit í Dölunum, birti myndband af honum að tala. 

Í myndbandinu segir Rebecca frá því að Krummi hafi verið hjá fjölskyldunni í rúmlega átta ár, en hann kom til þeirra eftir að hafa lent í slysi. Þá útskýrir hún einnig að hann geti ekki flogið og muni ekki geta flogið. 

„Þegar hann var tveggja ára byrjaði hann að tala íslensku af því já, hann er snjall fugl. Svo við skulum heilsa upp á Krumma,“ segir hún og byrjar svo að spjalla við Krumma.

Fjölhæf Netflix-stjarna

Rebecca rekur dýragarð sem er eins konar dýraathvarf ásamt fjölskyldu sinni, en í samtali við Morgunblaðið árið 2021 sagði hún frá því að Krummi hafi lært að tala af sjálfsdáðum. 

„Hann er alveg ótrúlegur, hann kann að segja hæ, mamma, ha hvað, Baltasar, já og nei. Stundum talar hann líka alveg eins og útvarp,“ sagði Rebecca í viðtalinu.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Krummi vekur athygli, en hann birtist í sjónvarpsþáttunum Kötlu á Netflix.

Rebecca segir hrafninn að sjálfsögðu hafa fengið að fylgjast með þegar þættirnir voru frumsýndir í sjónvarpinu og að það hafi komið fjölskyldunni á óvart hvernig hann brást við áhorfinu.  „Þegar hann sá Ingvar tók maður eft­ir að hann þekkti hann og hann þekkti líka um­hverfið. Svo þegar mynda­vél­inni var beint að hon­um þá hrópaði hann: „Krummi!“ Hann þekkti sjálf­an sig í sjón­varp­inu, þetta var al­veg ótrú­legt,“ sagði Rebecca.

Mynd úr þáttaröðinni um Kötlu.
Mynd úr þáttaröðinni um Kötlu. Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir/Netflix
mbl.is